1. gr. Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 652 frá 4. júlí 2014 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2014/2015 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélagi: Norðurþing. Ákvæði reglugerðar nr. 652 frá 4. júlí 2014 gilda um úthlutun byggðakvóta Húsavíkur, Raufarhafnar og Kópaskers með eftirfarandi viðauka/breytingum: | a) | Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: | | | Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2013 til 31. ágúst 2014. | | b) | Ákvæði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: | | | Afli af fiskiskipum sem landað er í sveitarfélagi af bátum sem ekki eru skráðir innan viðkomandi sveitarfélags á sama tíma, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr. | | c) | Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: | | | Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2014 til 31. ágúst 2015. |
2. gr. Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Jafnframt eru felldar úr gildi áður auglýstar reglur Norðurþings um úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2014/2015, samkvæmt auglýsingu nr. 985 frá 6. nóvember 2014. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 25. nóvember 2014. | F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, | Jóhann Guðmundsson. |
Hinrik Greipsson. |