Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1175/2014

Nr. 1175/2014 19. desember 2014
AUGLÝSING
um flutningsjöfnunargjald á olíuvörum.

Á grundvelli laga nr. 103/1994 um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara tilkynnir Byggða­stofnun að flutningsjöfnunargjald á neðangreindum olíuvörum verður sem hér segir frá og með 1. janúar 2015 og gildir gjaldið þar til annað verður ákveðið:

 

Bifreiðabensín

0,48 kr. á lítra

 

Gasolía

0,83 kr. á lítra

 

Aðrar olíur og blöndur til brennslu

0,14 kr. á kg

 

Flugsteinolía (þotueldsneyti)

0,14 kr. á lítra

 

Flugvélabensín;

0,25 kr. á lítra

Samkvæmt 3. gr. laga nr. 103/1994 um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara skulu dreif­ingar­aðilar samkvæmt 1. gr. laganna, aðrir en þeir sem annast innanlandssölu á olíu í öllum landshlutum, greiða flutningsjöfnunargjaldið við innheimtu aðflutningsgjalda miðað við innflutt móttekið magn. Tollstjórinn í Reykjavík og sýslumenn utan Reykjavíkur annast samkvæmt sömu grein innheimtu gjaldsins og skulu skila því til flutn­ings­jöfnunar­sjóðs olíuvara.

Auglýsing þessi kemur í stað auglýsingar nr. 474/2014.

Byggðastofnun, 19. desember 2014.

Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri.

Elín Gróa Karlsdóttir,
formaður stjórnar     
Flutningsjöfnunar-     
sjóðs olíuvara.          

B deild - Útgáfud.: 23. desember 2014