Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 661/2014

Nr. 661/2014 7. júlí 2014
REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1190/2012 varðandi það markmið Sambandsins að draga úr Salmonella enteritidis og Salmonella typhimurium í hópum kalkúna eins og kveðið er á um í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2160/2003.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 103/2013, frá 15. júní 2013, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1190/2012 frá 12. desember 2012 varðandi það markmið Sambandsins að draga úr Salmonella enteritidis og Salmonella typhimurium í hópum kalkúna eins og kveðið er á um í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2160/2003. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 37, frá 27. júní 2013, bls. 87.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt XI. kafla laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, 10. gr. laga nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir og 29. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

5. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi. Á sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 213/2012 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 584/2008 um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2160/2003 að því er varðar markmið Bandalagsins sem sett eru til að draga úr algengi Salmonella enteritidis og Salmonella typhimurium í kalkúnum.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 7. júlí 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ása Þórhildur Þórðardóttir.

Eggert Ólafsson.

B deild - Útgáfud.: 8. júlí 2014