Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 921/2008

Nr. 921/2008 30. september 2008
REGLUR
um breyting á reglum nr. 4/2008, um skattmat vegna tekna manna tekjuárið 2008.

1. gr.

Í stað fjárhæðanna „88,50“, „101,80“ og „128,30“ í kafla 3.1 Frádráttur kostnaðar á móti ökutækjastyrk, kemur: 92, 105,80 og 133,40.

2. gr.

Eftirfarandi breyting verður á fjárhæðum vegna dagpeninga innanlands í kafla 3.2 Frádráttur á móti dagpeningum:

Fyrir gistingu og fæði í einn sólarhring

kr. 17.200

Fyrir gistingu í einn sólarhring

kr. 10.000

Fyrir fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag

kr.   7.200

Fyrir fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag

kr.   3.600

3. gr.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 121. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlast gildi og koma til framkvæmda frá og með 1. október 2008.

Fjármálaráðuneytinu, 30. september 2008.

F. h. r.
Baldur Guðlaugsson.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

B deild - Útgáfud.: 30. september 2008