Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1149/2008

Nr. 1149/2008 18. desember 2008
AUGLÝSING
um deiliskipulag mislægra vegamóta við Leirvogstungu, Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga þann 19. nóvember 2008 samþykkt deiliskipulag fyrir Vesturlandsveg milli Köldukvíslar og Leirvogsár, með mislægum gatnamótum á móts við Leirvogstungu og Tungumela. Samkvæmt skipulaginu verður Vesturlandsvegur færður um allt að 50 m á kafla og lækkaður um allt að 7 m þar sem gatnamótin koma. Tengivegir úr hverfunum tengjast inn á hringtorg, sem verður á brúm yfir þjóðveginum og tengist honum með að- og fráreinum.
Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997, með síðari breytingum, mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 18. desember 2008,

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 19. desember 2008