1. gr. Markmið. Reglur þessar gilda um framgang akademískra starfsmanna við Háskólann á Akureyri, sbr. 3. mgr. 17. gr. laga um opinbera háskóla nr. 85/2008, sbr. og 19. gr. reglna fyrir Háskólann á Akureyri nr. 387/2009. Markmið framgangskerfis Háskólans á Akureyri er að hvetja akademíska starfsmenn til virkni og árangurs í starfi og auka með því gæði kennslu og rannsókna við Háskólann á Akureyri. Framgangur byggir á faglegu mati á frammistöðu og árangri í rannsóknum, kennslu, stjórnun og þjónustu í þágu Háskólans á Akureyri. Í reglum þessum er kveðið á um lágmarksskilyrði í tengslum við framgang. Fræðasviðum háskólans er hverju um sig heimilt að skilgreina nánari skilyrði og verklag við mat á umsóknum um framgang sem háskólaráð staðfestir í formi sérreglna. 2. gr. Framgangur akademískra starfsmanna. Rektor Háskólans á Akureyri veitir framgang samkvæmt reglum þessum. Lektor eða dósent getur óskað eftir framgangi í starfi. Rektor getur, án auglýsingar, flutt lektor í dósents- eða prófessorsstarf eða dósent í prófessorsstarf, enda uppfylli viðkomandi þá skilyrði til að gegna starfinu skv. hæfisdómi dómnefndar eftir ákvæðum reglna þessara. Hafi umsækjandi um framgang áður verið metinn hæfur af dómnefnd við háskóla eða vísindastofnun til að gegna þar starfi lektors, dósents eða prófessors, er rektor heimilt að víkja frá kröfum um nýtt dómnefndarálit og getur þá vísað umsókn beint til framgangsnefndar enda mæli dómnefnd Háskólans á Akureyri þá með þeirri meðferð málsins. Rektor er einnig heimilt að veita framgang þá þegar við nýráðningu ef umsækjandi sækir sérstaklega um slíkt og framgangsnefnd mælir með því. Skal umsækjandi þá uppfylla hæfi til að gegna því akademíska starfi sem um ræðir, annaðhvort samkvæmt fyrirliggjandi dómnefndaráliti, eða þá skv. 6. gr. reglna þessara, að mati dómnefndar við mat á umsókn. 3. gr. Umsóknarfrestur og umsóknir. Sækja skal um framgang til forseta fræðasviðs fyrir 1. nóvember ár hvert. Framgangur veittur samkvæmt reglum þessum tekur gildi við upphaf nýs háskólaárs þann 1. júlí. Áður en umsókn um framgang er lögð fram ber viðkomandi starfsmanni að leita eftir forkönnun á stigum hjá stjórnsýslu rannsókna hjá HA (SRHA). Beiðni um slíka forkönnun skal berast SRHA fyrir 1. október ár hvert. SRHA skal leita eftir samráði við vísindasvið Háskóla Íslands við gerð forkönnunar. Þegar forkönnun SRHA liggur fyrir tekur viðkomandi starfsmaður sjálfur ákvörðun um það hvort hann leggur fram umsókn um framgang. Forseti fræðasviðs getur einnig óskað eftir því að SRHA láti kanna fjölda stiga einstakra starfsmanna sem viðkomandi sviðsforseti vill hvetja til að sækja um framgang. Umsókn um framgang skal uppfylla sömu kröfur og gerðar eru til umsókna um laus störf skv. 19. gr. reglna fyrir Háskólann á Akureyri nr. 387/2009. Í umsókninni skal umsækjandi gera grein fyrir þeim verkum sínum á sviði rannsókna, kennslu, stjórnunar og þjónustu sem hann telur veigamest með tilliti til umsóknar sinnar um framgang. Umsækjandi skal einnig nefna a.m.k. tvo utanaðkomandi sérfræðinga sem geta veitt umsögn um verk hans, sbr. 4. gr. reglna þessara. Sérfræðingarnir skulu vera viðurkenndir fræðimenn á sínu sviði og starfa utan Háskólans á Akureyri. Umsókn skal vera annaðhvort á íslensku eða á ensku, en fara má fram á að umsækjendur láti þýða viss umsóknargögn á hitt tungumálið ef þurfa þykir. Forseti fræðasviðs beinir umsókn um framgang til dómnefndar innan tveggja vikna frá lokum umsóknarfrests. Forseta fræðasviðs er heimilt að leggja fram greinargerð með umsókn starfsmanns um framgang. 4. gr. Dómnefnd. Við Háskólann á Akureyri starfar föst þriggja manna dómnefnd, sbr. 19. gr. reglna fyrir Háskólann á Akureyri nr. 387/2009, sbr. og 4. gr. reglna um störf dómnefndar, ráðningar og framgang háskólakennara við Háskólann á Akureyri nr. 1207/2007. Hlutverk dómnefndar hvað varðar framgangsmál er eftirfarandi: að meta hvort umsækjendur um framgang uppfylla þau lágmarksskilyrði sem sett eru um það starfsheiti sem við á samkvæmt ákvæðum 2. og 6. gr. reglna þessara, 19. gr. reglna fyrir Háskólann á Akureyri nr. 387/2009 og sérreglna einstakra fræðasviða, að meta árangur og virkni umsækjanda í starfi sínu og veita framgangsnefnd Háskólans á Akureyri álit um hvort mælt sé með því að framgangur verði veittur.
Í framgangsmálum skal dómnefnd afla umsagna tveggja viðurkenndra utanaðkomandi sérfræðinga á fræðasviði umsækjandans sem fylgja skulu umsókn til framgangsnefndar Háskólans á Akureyri, nema nefndin telji að umsækjandi uppfylli ekki lágmarksskilyrði skv. a-lið 2. mgr. Dómnefnd er heimilt að leita út fyrir þann hóp utanaðkomandi sérfræðinga sem umsækjandi nefnir í umsókn sinni, sbr. 3. gr. Tilkynna skal umsækjanda og forseta viðkomandi fræðasviðs hvaða sérfræðingar muni veita álit. Dómnefnd er heimilt að óska eftir upplýsingum um mat á fyrri störfum umsækjanda frá stjórnsýslu háskólans. Þegar álit dómnefndar liggur fyrir skal nefndin veita umsækjanda allt að 14 daga andmælarétt. Um málsmeðferð og störf dómnefndar í framgangsmálum, svo sem varðandi mat á hæfi umsækjenda m.t.t. menntunar, rannsókna, kennslureynslu, stjórnunar o.fl., gilda auk reglna þessara almennar reglur Háskólans á Akureyri um störf dómnefndar, sbr. 19. gr. reglna nr. 387/2009 og sbr. ennfremur 5. og 6. gr. reglna nr. 1207/2007. Mæli dómnefnd með því að framgangur verði veittur sendir hún framgangsnefnd háskólans umsóknargögn, greinargerð dómnefndar og umsagnir sérfræðinga innan fjögurra mánaða frá því að umsóknarfresti lauk, eða eigi síðar en 1. mars. 5. gr. Framgangsnefnd Háskólans á Akureyri. Rektor skipar framgangsnefnd Háskólans á Akureyri sem í eiga sæti fimm manns hverju sinni. Skal rektor tilnefna einn nefndarmann sem er jafnframt formaður nefndarinnar en hvert hinna þriggja fræðasviða háskólans tilnefnir einn nefndarmann og eiga þessir framangreindu fast sæti í nefndinni. Að auki skal rektor jafnan skipa einn nefndarmann til setu í sérhverju framgangsmáli og skal sá tilnefndur af því fræðasviði sem umsækjandi um framgang starfar við og skal vera sérfróður um þau tilteknu fræði sem umsækjandi fæst við. Hinir fjórir föstu nefndarmenn skulu skipaðir til þriggja ára í senn og skal þess gætt að bæði karlar og konur eigi þar sæti. Tilnefna skal varamenn fyrir hina fjóra föstu nefndarmenn með sama hætti og að framan greinir. Í framgangsnefndina má skipa þá eina sem hlotið hafa prófessorshæfi og er miðað við að þeir sem skipaðir eru í nefndina hafi viðamikla reynslu af rannsóknum, kennslu og stjórnunarstörfum. Framgangsnefndin metur umsóknir um framgang á grundvelli fyrirliggjandi gagna og ákvæða 6. gr. reglna þessara, 19. gr. reglna fyrir Háskólann á Akureyri nr. 387/2009 og sérreglna fræðasviða um framgang. Framgangsnefnd gerir á grundvelli þess mats tillögu til rektors um hvort veita beri framgang. Framgangsnefnd tekur ákvarðanir í krafti meirihluta atkvæða nefndarmanna í máli en falli atkvæði um ákvörðun jöfn skal formaður skera úr og ræður atkvæði hans þá lyktum máls. Ef það er niðurstaða framgangsnefndar að ekki beri að veita framgang skal hún rökstyðja þá niðurstöðu sína sérstaklega og veita umsækjanda allt að 14 daga andmælarétt. Álit framgangsnefndar Háskólans á Akureyri skal berast rektor eigi síðar en 30. apríl. 6. gr. Mat á umsóknum um framgang. Umsókn um framgang skal metin á grundvelli reglna þessara, 19. gr. reglna fyrir Háskólann á Akureyri og sérreglna fræðasviða. Stigagjöf samkvæmt reglum þessum byggir á matskerfi opinberra háskóla. Til að teljast uppfylla lágmarksskilyrði sbr. a. lið 2. mgr. 4. gr. þarf umsækjandi að uppfylla eftirfarandi skilyrði: Hafa fengið tiltekinn lágmarksfjölda stiga fyrir rannsóknir og kennslu sem tilgreind eru í töflum 1-3 í þessari grein. Auk krafna um lágmarksfjölda rannsóknarstiga, skv. töflu 1 og 2, er gerð krafa um lágmarksfjölda rannsóknarstiga úr tilteknum flokkum matskerfisins, sbr. töflu 3. Þessir flokkar eru: A2 (bækur), þó ekki A2.4 og A2.5. A3 (bókakaflar), þó ekki A3.4. A4 (tímaritsgreinar), að undanskildum flokknum A4.4. A5.1 (greinar í alþjóðlegum ráðstefnuritum).
Hafa lokið meistaraprófi hið minnsta eða hafa jafngilda þekkingu og reynslu að mati dómnefndar. Umsækjandi um framgang í starf dósents eða prófessors skal hafa doktorspróf eða jafngildi þess nema aðstæður á viðkomandi fræðasviði séu þannig að ekki sé unnt að koma því við. Heimilt er að gera strangari kröfur um menntun vegna framgangs í sérreglum fræðasviða og skal umsækjandi þá uppfylla þær.
Við mat á því hvort mæla eigi með framgangi, sbr. b-lið 2. mgr. 4. gr., skal auk skilyrða sem tilgreind eru í 2. mgr., litið til árangurs og virkni umsækjanda í starfi sínu við Háskólann á Akureyri. Við mat á árangri og virkni skal tekið mið af eftirfarandi sjónarmiðum, ákvæðum 19. gr. reglna fyrir Háskólann á Akureyri og sérreglna fræðasviða: Rannsóknir. Metinn er fjöldi rannsóknarstiga sem umsækjandi hefur áunnið sér. Hafi umsækjandi sýnt fram á getu sína til að afla styrkja til rannsóknarverkefna úr viðurkenndum rannsóknarsjóðum styrkir það umsókn um framgang. Við framgang í starf prófessors er gerð krafa um að umsækjendur hafi sýnt fram á verulega hæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vísindastörfum. Ennfremur styrkir reynsla og virkni í alþjóðlegu rannsóknarsamstarfi umsókn um framgang. Kennsla. Lagt er mat á kennsluferil umsækjanda, svo sem kennslureynslu, nýsköpun í kennslu, kennsluhætti og þróun kennsluefnis. Við framgang í dósentsstarf er gerð krafa um reynslu af leiðbeiningu á meistarastigi. Við framgang í starf prófessors er ennfremur gerð krafa um að umsækjandi hafi verið aðalleiðbeinandi í meistara- eða doktorsnámi. Framangreind krafa um leiðbeiningarreynslu er miðuð við að boðið sé upp á nám til meistara- og/eða doktorsnáms í kennslugrein umsækjanda. Stjórnun. Þátttaka í stjórnun innan Háskólans á Akureyri. Þjónusta - tengsl við atvinnu- og þjóðlíf. Virk tengsl umsækjanda við atvinnu- og þjóðlíf í krafti sérþekkingar sinnar og í þágu hlutverks og stefnu Háskólans á Akureyri styrkja umsókn um framgang. Meta skal hvernig þessi tengsl nýtast Háskólanum á Akureyri, hvort sem er í rannsóknum, kennslu og námi eða til að styrkja orðspor og kynningu háskólans út á við.
Dómnefnd getur við sérstakar aðstæður gert meiri eða minni kröfur um lágmarksstig ef talin er ástæða til. Víki mat dómnefndar frá viðmiðum um stigafjölda fyrir einhvern starfsþátt kennara eða sérfræðinga eða frá öðrum kröfum, sem gerðar eru við framgang á milli starfsheita, þarf að rökstyðja það sérstaklega. Tafla 1 Lágmarksstig fyrir hvern starfsþátt kennara | | Rannsóknir | Kennsla | Stjórnun, þjónusta, annað | Mismunur | Alls | Lektor | 30 | - | - | 0 | 30 | Dósent | 130 | 20 | - | 50 | 200 | Prófessor | 270 | 50 | - | 80 | 400 |
Tafla 2 Lágmarksstig fyrir hvern starfsþátt sérfræðinga og fræðimanna | | Rannsóknir | Kennsla | Stjórnun, þjónusta, annað | Mismunur | Alls | Sérfræðingur | 30 | - | - | 0 | 30 | Fræðimaður | 150 | - | - | 50 | 200 | Vísindamaður | 320 | - | - | 80 | 400 |
Tafla 3 Lágmarksfjöldi stiga úr tilgreindum flokkum rannsóknahluta matskerfis | | Ritrýndar bækur (yfir 25 stig) ISI greinar Aðrar ritrýndar greinar Greinar í alþjóðlegum ráðstefnuritum Bókarkaflar, alþjóðlegar akademískar útgáfur | Lektor/sérfræðingur | - | Dósent/fræðimaður | 80/90 | Prófessor/vísindamaður | 180/200 |
Ef kennari er samkvæmt auglýsingu eða ráðningarsamningi ráðinn á listrænum forsendum skulu kröfur um lágmarksfjölda rannsóknarstiga við framgang vera í samræmi við töflu 1. Einnig er gerð krafa um að slíkur kennari hafi að lágmarki fjórðung stiga úr tilteknum flokkum matskerfisins, sbr. töflu 3. Samkvæmt því er gerð krafa um 130 rannsóknarstig í starf dósents og þar af skulu 20 stig vera úr tilteknum flokkum matskerfisins, sbr. 1. tölul. 2. mgr. 6. gr. þessara reglna. Við framgang í starf prófessors er gerð krafa um 270 stig og þar af skulu 45 stig vera úr tilteknum flokkum matskerfisins, sbr. 1. tölul. 2. mgr. 6. gr. 7. gr. Lagastoð. Reglur þessar eru settar á grundvelli heimildar í 4. mgr. 5. gr., 5. mgr. 15. gr. og 1. og 3. mgr. 17. gr. laga um opinbera háskóla nr. 85/2008, sbr. ennfremur 19. gr. reglna fyrir Háskólann á Akureyri nr. 387/2009. 8. gr. Gildistaka. Reglur þessar öðlast gildi 1. nóvember 2012. Falla þá úr gildi ákvæði 3. gr. reglna um störf dómnefndar, ráðningar og framgang háskólakennara við Háskólann á Akureyri nr. 1207/2007, nema hvað ákvæði í gr. 3.2 í þeim reglum verður þó áfram beitt um nýráðningar. Umsóknir um framgang sem berast Háskólanum á Akureyri fyrir gildistöku þessara reglna skulu alfarið lúta meðferð samkvæmt þeim eldri reglum er giltu fram til 1. nóvember 2012. Þannig samþykkt í háskólaráði 31. ágúst 2012. Háskólanum á Akureyri, 4. september 2012. Stefán B. Sigurðsson rektor. Sigurður Kristinsson, varaforseti háskólaráðs. |