Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 61/2013

Nr. 61/2013 14. janúar 2013
AUGLÝSING
um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar Skeljatangi 12, Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 15. ágúst 2012 samþykkt tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi á lóðinni Skeljatangi 12, sem fengið hafði meðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var grenndarkynnt 1. júní 2012 og bárust ekki athugasemdir í grenndarkynningu.
Breytingin, sem felst í því að byggingarreitur er stækkaður um 4 m til norðurs, hefur hlotið þá meðferð sem lög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 14. janúar 2013,

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 28. janúar 2013