Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 551/2012

Nr. 551/2012 27. júní 2012
AUGLÝSING
(VII) um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 1182 frá 21. desember 2011 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélagi:

Norðurþing.

a)

Ákvæði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Afli af fiskiskipum sem landað er í sveitarfélagi af bátum sem ekki eru skráðir innan viðkomandi sveitarfélags á sama tíma, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr.

b)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiski­skipum er skylt að landa til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. sept­ember 2011 til 31. ágúst 2012 afla sem nemur, í þorskígildum talið, jöfnu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerð þessari og skal úthlutun til þeirra ekki fara fram nema að því leyti sem það skilyrði er uppfyllt skv. vigtunar- og ráðstöfunarskýrslum sem borist hafa Fiskistofu.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 27. júní 2012.

F. h. r.

Arndís Á. Steinþórsdóttir.

Hinrik Greipsson.

B deild - Útgáfud.: 27. júní 2012