Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur skv. 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga þann 24. júní 2009 samþykkt breytingu á deiliskipulagi íbúðarhverfisins Leirvogstungu, síðast breyttu 28. mars 2008. Skipulagsbreytingin felst í því að húsgerð á lóðum nr. 72 - 80 og 116 - 124 við Laxatungu breytist úr tveggja hæða raðhúsi í einnar hæðar. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi. F.h. Mosfellsbæjar, 30. september 2009, Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi. |