Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 728/2007

Nr. 728/2007 7. ágúst 2007
AUGLÝSING
um deiliskipulag frístundalóðar og breytingar á deiliskipulagi Krikahverfis, Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 23. maí 2007 í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt deiliskipulag frístundalóðar í landi Miðdals II sunnan Krókatjarnar, landnúmer 192804. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir því að á lóðinni sem er um 1,1 ha að stærð, megi reisa tvö frístundahús, hvort um sig allt að 110 m² að stærð, auk 20 m² geymsluhúss.
Þá hefur bæjarstjórn Mosfellsbæjar þann 20. júní 2007 í samræmi við 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt breytingar á deiliskipulagi Krikahverfis, sem m.a. felast í gerð hringtorgs þar sem hverfið tengist Hafravatnsvegi, breyttri legu Sunnukrika á kafla og nýrri lóð fyrir bensínstöð milli Sunnukrika og Hafravatnsvegar.
Breyttur deiliskipulagsuppdráttur Krikahverfis inniheldur ennfremur eftirtaldar breytingar, sem hlotið hafa málsmeðferð skv. 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga:
Litlikriki 21, byggingarreitur stækkaður, samþykkt í bæjarstjórn 18. október 2006.
Litlikriki 25, byggingarreitur stækkaður, samþykkt í bæjarstjórn 29. nóvember 2006.
Stórikriki 58, breytt húsgerð og heimiluð aukaíbúð, samþykkt í bæjarstjórn 20. desember 2006.
Stórikriki 56, breytt húsgerð og heimiluð aukaíbúð, samþykkt í bæjarstjórn 28. febrúar 2007.
Stórikriki 59, breytt húsgerð, samþykkt í bæjarstjórn 28. febrúar 2007.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun frístundalóðar og breytingar á deiliskipulagi Krikahverfis hafa hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 7. ágúst 2007

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 10. ágúst 2007