Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 578/2013

Nr. 578/2013 24. júní 2013
REGLUGERÐ
um breytingu á skipulagsreglugerð nr. 90/2013.

1. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi: Heimilt er við breyt­ingu á aðalskipulagi, sbr. 1. mgr. og 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga, að fylgja ákvæðum eldri skipulagsreglugerðar nr. 400/1998 hvað varðar kröfur um framsetningu skipulags­uppdráttar um tákn, línur og liti ef kröfur reglugerðarinnar eru ekki í samræmi við þau tákn, línur og liti sem fyrir eru í gildandi aðalskipulagi.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 45. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 24. júní 2013.

F. h. r.

Stefán Thors.

Sigríður Auður Arnardóttir.

B deild - Útgáfud.: 25. júní 2013