Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 193/2015

Nr. 193/2015 25. febrúar 2015
AUGLÝSING
(X) um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 652 frá 4. júlí 2014 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2014/2015 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélagi:

Súðavíkurhreppur.

Ákvæði reglugerðar nr. 652 frá 4. júlí 2014 gilda um úthlutun byggðakvóta fyrir Súðavík með eftirfarandi viðauka/breytingum:

 

a)

a-liður 1. gr. breytist þannig:

  

Hafa leyfi til veiða í atvinnuskyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006 eða frístunda­veiði­leyfi skv. 2. tl. 4. mgr. 6. gr. sömu laga, við lok umsóknarfrests.

 

b)

b-liður 1. gr. breytist þannig:

  

Eru skráð í viðkomandi byggðarlagi 4. desember 2014.

 

c)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. breytist og verður:

  

Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðu­neytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, á þann veg að 15% byggða­kvóta Súðavíkur skal skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglu­gerðar­innar og eru með frístundaveiðileyfi en 85% byggðakvótans í Súðavík skal skipt jafnt á önnur skip sem hafa leyfi til veiða í atvinnuskyni og uppfylla skilyrði 1. gr. reglu­gerðar­innar.

 

d)

Ákvæði 1. og 2. málsl. 1. mgr. 6. gr. breytist og verður:

  

Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla í Súðavík sem telja á til byggðakvóta, til vinnslu innan hlutaðeigandi byggðarlags á tímabilinu frá 1. september 2014 til 31. ágúst 2015. Aflinn skal nema, í þorskígildum talið, jöfnu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerð þessari.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 25. febrúar 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Hinrik Greipsson.

B deild - Útgáfud.: 26. febrúar 2015