Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 766/2014

Nr. 766/2014 18. júlí 2014
REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um aðgerðir til stuðnings við starfsemi Alþjóðlega sakamáladómstólsins fyrir fyrrum lýðveldi Júgóslavíu.

1. gr.

Heiti reglugerðar nr. 904/2009 verði:

Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Serbíu.

2. gr.

Eftirfarandi málsgreinar komi í stað 1. og 2. mgr. 1. gr.:

Reglugerð þessi er sett til þess að framfylgja ákvæðum um þvingunaraðgerðir sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildar­ríkja Evrópusambandsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu um pólitísk skoðana­skipti, sem er hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993.

Þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins varðandi Serbíu byggja á eftirfarandi gerðum:

Sameiginleg afstaða 2000/696/SSUÖ frá 10. nóvember 2000 um að viðhalda vissum þvingunaraðgerðum sem beinast gegn herra Milosevic og aðilum sem honum tengjast.

Sameiginleg afstaða 2001/155/SSUÖ frá 26. febrúar 2001 um breytingu á sam­eigin­legri afstöðu 2000/696/SSUÖ um að viðhalda vissum þvingunaraðgerðum sem beinast gegn herra Milosevic og aðilum sem honum tengjast.

Reglugerð ráðsins (EB) nr. 2488/2000 frá 10. nóvember 2000 um að viðhalda frystingu fjármuna varðandi herra Milosevic og þá aðila sem honum tengjast.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1205/2001 frá 19. júní 2001 um breytingu, í fyrsta sinn, á reglugerð ráðsins (EB) nr. 2488/2000 um að viðhalda frystingu fjármuna varðandi herra Milosevic og þá aðila sem honum tengjast.

3. gr.

Ákvæði 2. gr. hljóði svo:

Einstaklingum, sem tilgreindir eru í viðauka, er óheimilt að koma til landsins eða hafa hér viðkomu.

4. gr.

Ákvæði 3. gr. hljóði svo:

Frysta skal fjármuni og efnahagslegan auð í eigu aðila sem tilgreindir eru í viðauka.

5. gr.

Heiti I. viðauka verði: Viðauki – Listi varðandi landgöngubann og frystingu fjármuna.

1. og 2. hluti I. viðauka falli niður.

Fyrirsögnin; „3. 2001/155/CFSP (Serbía og Svartfjallaland)“ falli niður.

II. viðauki falli niður.

6. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 18. júlí 2014.

Gunnar Bragi Sveinsson.

Einar Gunnarsson.

B deild - Útgáfud.: 22. ágúst 2014