Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
1024/2005
|
1. gr. Eftirfarandi texti undir liðnum ,,Lakkviðgerðir ökutækja" í I. viðauka reglugerðarinnar fellur brott: – yfirborðsmeðferð ökutækja, samkvæmt skilgreiningu í tilskipun 70/156/EBE, eða hluta þeirra, sem framkvæmd er sem hluti af viðgerð ökutækja, viðhaldi eða skreytingu utan bifreiðasmiðjanna, eða. 2. gr. Reglugerð þessi er sett með stoð í 5. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, og 29. gr. laga nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni. Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á ákvæðum tilskipunar 2004/42/EB um takmörkun á losun rokgjarnra, lífrænna efnasambanda vegna notkunar lífrænna leysa í tiltekinni málningu og lakki og efnum til lakkviðgerða á ökutækjum og um breytingu á tilskipun 1999/13/EB, sem vísað er til í 9. tl. XVII. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 79/2003, þann 11. júní 2005. Umhverfisráðuneytinu, 24. nóvember 2005. F. h. r. Magnús Jóhannesson. Ingibjörg Halldórsdóttir.
|
B-deild - Útgáfud.:
28. nóvember 2005
|