Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 486/2014

Nr. 486/2014 8. maí 2014
AUGLÝSING
um umferð í Reykjavík.

Samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, og að fengnum tillögum umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar hefur lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu ákveðið eftirfarandi:

að hámarkshraði á Hofsvallagötu, milli Hringbrautar og Túngötu, verði 30 km/klst.,
að hámarkshraði á Túngötu, milli Hofsvallagötu og Suðurgötu verði 30 km/klst.,
að stöðubann verði við austurkant Rekagranda. Bannið er táknað með umferðar­merkinu B21.11.

Ákvörðun þessi tekur gildi við birtingu auglýsingarinnar.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, 8. maí 2014.

Stefán Eiríksson.

B deild - Útgáfud.: 22. maí 2014