Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
13/2006
|
1. gr. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 631/2004 frá 31. mars 2004 um breytingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 1408/71, um beitingu almannatryggingareglna gagnvart launþegum, sjálfstætt starfandi einstaklingum og fjölskyldum þeirra sem flytjast milli aðildarríkja og reglugerð ráðsins (EBE) nr. 574/72 sem kveður á um framkvæmd reglugerðar (EBE) nr. 1408/71, að því er varðar jöfnun réttinda og einföldun málsmeðferðar, sem vísað er til í VI. viðauka (félagslegt öryggi) við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 101/2004 frá 9. júlí 2004, skal öðlast gildi hér á landi að því leyti sem ákvæði hennar lúta að atvinnuleysistryggingum og greiðslum í fæðingarorlofi. Reglugerðin skal gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 631/2004 fjallar að hluta til um atvinnuleysistryggingar, greiðslur í fæðingarorlofi, barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum. Í reglugerð frá fjármálaráðuneytinu nr. 12/2006 er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum. Í reglugerð frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu nr. 11/2006 er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um réttindi samkvæmt lögum um almannatryggingar. 2. gr. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 631/2004 og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 101/2004, sbr. 1. gr., sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 65, 23. desember 2004, bls. 19, er birt sem fylgiskjal með reglugerð heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins nr. 11/2006. 3. gr. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 29. gr. laga nr. 12/1997, um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, og 35. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, öðlast þegar gildi. Félagsmálaráðuneytinu, 9. janúar 2006. F. h. r. Ragnhildur Arnljótsdóttir. Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.
|
B-deild - Útgáfud.:
16. janúar 2006
|