Samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og að fenginni tillögu bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar eru hér með settar eftirfarandi reglur um umferð á Akranesi: Stöðvunarskylda verður á umferð af lóðinni nr. 32 við Smiðjuvelli út á Þjóðbraut. Hámarkshraði verður lækkaður úr 50 km/klst. í 30 km/klst. á 160 metra kafla framan við leikskólann Akrasel, milli göngustíga beggja vegna Akrasels. Hámarkshraði verður lækkaður úr 50 km/klst. í 30 km/klst. á Höfðagrund, og miðast mörkin við innkeyrslur frá Innnesvegi.
Auglýsing þessi tekur þegar gildi. Með auglýsingu þessari eru numin úr gildi þau ákvæði eldri auglýsinga sem brjóta í bága við auglýsingu þessa. Lögreglustjórinn á Akranesi, 28. nóvember 2012. Halla Bergþóra Björnsdóttir. |