Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 610/2009

Nr. 610/2009 24. júní 2009
REGLUR
um stjórnskipulag heilbrigðisvísindasviðs Háskólans á Akureyri.

I. KAFLI
Markmið og stefna.

1. gr.

Helstu markmið og stefna.

Meginmarkmið heilbrigðis­vísindasviðs Háskólans á Akureyri er að bjóða upp á háskólanám og standa fyrir rannsóknum í heilbrigðis­vísindum, þar með talið hjúkrunarfræði, iðjuþjálfunarfræði og öðrum greinum heilbrigðisvísinda. Heilbrigðis­vísindasvið vinnur eftir stefnu sem unnin var og mótuð til áranna 2009-2012 og er í samræmi við grunnmarkmið heilbrigðisvísindasviðs og stefnu Háskólans á Akureyri hverju sinni.

Heilbrigðisvísindasvið starfar á grundvelli laga nr. 63/2006 um háskóla og laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna fyrir Háskólann á Akureyri nr. 387/2009.

II. KAFLI
Skipulagseiningar.

2. gr.

Deildir og brautir fræðasviðsins.

Heilbrigðisvísindasvið skiptist í þrjár deildir; hjúkrunarfræðideild, iðjuþjálfunarfræðideild og framhaldsnámsdeild í heilbrigðisvísindum.

Hver deild ber ábyrgð á skipulagi og þróun þess náms sem heilbrigðisvísindasvið hefur samþykkt að fari fram innan deildarinnar. Innan hverrar deildar er boðið upp á minnst eina námslínu eða braut, en með því er átt við skilgreinda samsetningu námskeiða sem nemandinn þarf að ljúka til að hljóta tiltekna gráðu.

Við skipulagningu náms við heilbrigðisvísindasvið er tekið mið af lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 23/2006, lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997 og lögum um sjúkratryggingar nr. 112/2008.

Við skipulagningu náms í hjúkrunarfræði er tekið mið af 1. gr. hjúkrunarlaga nr. 8/1974, um veitingu hjúkrunarleyfa.

Við skipulagningu náms í iðjuþjálfun er tekið mið af lögum um iðjuþjálfun nr. 75/1977.

Við skipulagningu náms í framhaldsnámi í heilbrigðisvísindum er meðal annars tekið mið af því að hver nemandi geti fengið nám sitt metið til sérfræðiviðurkenningar, sjá meðal annars, lög nr. 12/2008 og reglugerð nr. 124/2003, (fyrir sérfræðinga í hjúkrun), læknalög nr. 53/1988, reglugerðir nr. 145/2003 og nr. 966/2008 um veitingu sérfræðileyfa í sjúkraþjálfun,lög um félagsráðgjöf nr. 95/1990 og lög um þroskaþjálfa nr. 18/1978.

III. KAFLI
Stjórnskipulag.

3. gr.

Skilgreiningar.

Stundakennari: Kennari sem kennir hluta úr námskeiði eða heilt námskeið en er ekki ráðinn í stöðu aðjúnkts, lektors, dósents eða prófessors við Háskólann á Akureyri.

Kennari með tímabundinn ráðningarsamning: Aðjúnkt eða lektor sem ráðinn er til afmarkaðs tíma, t.d. eins eða tveggja ára. Um getur verið að ræða hlutastarf eða fullt starf.

Fastráðinn kennari: Aðjúnkt, lektor, dósent eða prófessor sem ráðinn er ótímabundið. Um getur verið að ræða hlutastarf eða fullt starf.

Sérfræðingur: Starfsmaður sem ráðinn er til rannsókna og/eða þróunarverkefna, með eða án rannsóknarfrelsis, í krafti sérfræðiþekkingar sinnar.

Verkefnastjóri klínísks náms: Starfsmaður sem ráðinn er m.a. til að sjá um niðurröðun nemenda í hjúkrunarfræði í klínískt nám og hefur umsjón með klínískri námsstofu, Þorbjargarstofu, sjá nánari starfslýsingu í „Handbók um klínískt nám á hjúkrun­ar­fræði­braut heilbrigðisdeildar HA".

4. gr.

Deildafundur heilbrigðisvísindasviðs.

Deildafundur heilbrigðisvísindasviðs fer með æðsta ákvörðunarvald í málefnum fræðasviðs. Hann fjallar um meginatriði í starfsemi heilbrigðisvísindasviðsins og ber ásamt forseta fræðasviðs ábyrgð á að starfsemi sviðsins sé í samræmi við lög og reglur. Deildafundur heilbrigðisvísindasviðs gerir tillögur að ráðningu forseta heil­brigðis­vísindasviðs til tveggja ára samkvæmt 15. gr. reglna fyrir Háskólann á Akureyri nr. 387/2009, að undangenginni kosningu um umsækjendur. Á deildafundi skal jafnframt kosinn staðgengill forseta fræðasviðs til tveggja ára sem og varastaðgengill. Nánar er kveðið á um verkefni deildafundar í 16. gr. reglna fyrir Háskólann á Akureyri nr. 387/2009.

Á deildafundi eiga sæti og atkvæðisrétt; forseti fræðasviðs, prófessorar, dósentar, lektorar og aðjúnktar óháð starfshlutfalli og aðrir fastráðnir starfsmenn heilbrigðis­vísindasviðs, starfsmenn Heilbrigðisvísindastofnunar Háskólans á Akureyri, sjá reglur nr. 867 um Heilbrigðisvísindastofnun Háskólans á Akureyri frá 20. nóvember 2003. Einn fulltrúi stundakennara hverrar deildar og einn fulltrúi nemenda hverrar deildar, samkvæmt 16. gr. reglna fyrir Háskólann á Akureyri nr. 387/ 2009.

5. gr.

Deildaráð heilbrigðisvísindasviðs.

Deildaráð heilbrigðisvísindasviðs starfar samkvæmt 13. gr. reglna fyrir Háskólann á Akureyri nr. 387/2009. Ráðið fjallar um erindi sem varða mál einstakra nemenda og önnur málefni sem varða heilbrigðisvísindasvið. Deildafundur (sviðsfundur) heilbrigðisvísindasviðs setur nánari reglur um vald og verksvið deildaráðs.

Í deildaráði eiga sæti auk forseta fræðasviðs, staðgengill forseta fræðasviðs, deildarformenn, tveir fulltrúar fastra kennara fræðasviðs og tveir til vara, sem kosnir eru á deildafundi heilbrigðisvísindasviðs til tveggja ára í senn og einn fulltrúi nemenda valinn af félagssamtökum þeirra til eins árs í senn.

6. gr.

Forseti heilbrigðisvísindasviðs, deildarformenn og deildarfundir.

Forseti heilbrigðisvísindasviðs ber ábyrgð á rekstri heilbrigðisvísindasviðs og kennslu á heilbrigðisvísindasviði ásamt deildarformönnum.

Deildarformenn og deildarfundir bera ábyrgð á kennslu, kennslufyrirkomulagi og þróun náms innan hverrar deildar heilbrigðisvísindasviðs. Deildarfundir hverrar deildar gera tillögur til deildaráðs um að auglýsa stöður, fjalla um umsóknir að fengnu dómnefndaráliti og gera tillögur til forseta heilbrigðis­vísindasviðs um ráðningar.

Sæti í deild – og þar með seturétt, tillögurétt og atkvæðisrétt á deildarfundum – eiga aðjúnktar, lektorar, dósentar eða prófessorar sem inna af hendi minnst 50% kennsluskyldu sinnar innan deildar. Þetta ákvæði á ekki við um framhaldsnámsdeild í heilbrigðisvísindum.

Deildarformaður skal kosinn af deildarfundi hverrar deildar til tveggja ára í senn úr hópi fastráðinna lektora, dósenta eða prófessora deildarinnar. Einnig skal deildarfundur kjósa staðgengil deildarformanns til sama tíma. Einungis deildarfundur getur leyft frávik frá þessum ákvæðum.

Deildarformaður ber ábyrgð á starfsemi deildar, skipulagi, undirbúningi og framkvæmd náms, þróun og samskiptum og tekur einnig þátt í stjórn deildar. Hann sér um samskipti við nemendur, áætlun kennslumagns, gerir tillögur um nýráðningar, velur umsjónarkennara í samráði við forseta heilbrigðis­vísindasviðs og kemur að stundaskrárgerð í samvinnu við deildaskrifstofu fræðasviðsins. Deildarformaður stýrir deildarfundum og fylgir samþykktum fundanna eftir. Nánar skal kveðið á um ábyrgð og verkefni deildarformanns í sérstakri starfslýsingu.

7. gr.

Náms- og matsnefndir.

Innan heilbrigðisvísindasviðs skulu náms- og matsnefndir starfa innan hverrar deildar.

Námsnefndir gera tillögur til deildarfundar um breytingar á náms- og kennsluskrá. Námsnefndir skulu minnst vera skipaðar þremur fulltrúum fastráðinna kennara sem valdir eru til tveggja ára í senn af viðkomandi deildarfundi og einum fulltrúa nemenda, sem valinn er af félagasamtökum þeirra til eins árs í senn. Deildarformaður er að jafnaði formaður námsnefndar viðkomandi deildar, en að öðru leyti skiptir nefndin sjálf með sér verkum.

Matsnefndir skulu gera tillögur um mat á fyrra námi og fyrirhuguðu skiptinámi nemenda viðkomandi deildar. Matsnefndir skulu minnst vera skipaðar þremur fulltrúum fastráðinna kennara sem valdir eru til tveggja ára í senn af viðkomandi deildarfundi.

IV. KAFLI
Gildistaka o.fl.

8. gr.

Gildistaka og endurskoðun.

Stjórnskipulag þetta er samþykkt á grundvelli laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna fyrir Háskólann á Akureyri nr. 387/2009 og tekur gildi frá og með 1. ágúst 2009.

Stjórnskipulag þetta skal endurskoðað reglulega með hliðsjón af fenginni reynslu.

Háskólanum á Akureyri, 24. júní 2009,

Þorsteinn Gunnarsson rektor.

B deild - Útgáfud.: 13. júlí 2009