1. gr. Innleiðing gerða. Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 1. mgr. 3. gr. reglugerðar um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu nr. 758/2014: 1) | Í stað fylgiskjals 3 í upptalningu kemur: | | – | Fylgiskjal 3: Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1382/2014 frá 22. október 2014 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 428/2009 um að setja Bandalagsreglur um eftirlit með útflutningi, flutningi, miðlun og umflutningi hluta með tvíþætt notagildi. | 2) | Í stað fylgiskjals 5 í upptalningu kemur: | | – | Fylgiskjal 5: Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/108/ESB frá 12. desember 2014 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/43/EB að því er varðar skrána yfir varnartengdar vörur. | 3) | Á eftir fylgiskjali 5 í upptalningu kemur nýr liður: | | – | Fylgiskjal 6: Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 599/2014 frá 16. apríl 2014 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 428/2009 um að setja Bandalagsreglur um eftirlit með útflutningi, flutningi, miðlun og umflutningi hluta með tvíþætt notagildi. |
Fylgiskjöl 3, 5 og 6 eru birt sem fylgiskjöl 1, 2 og 3 við reglugerð þessa. 2. gr. Gildistaka o.fl. Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4., 5. og 14. gr. laga um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu nr. 58/2010, öðlast þegar gildi. Utanríkisráðuneytinu, 2. mars 2015. Gunnar Bragi Sveinsson. Stefán Haukur Jóhannesson. Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal) |