Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1209/2013

Nr. 1209/2013 20. desember 2013
REGLUGERÐ
um (7.) breytingu á reglugerð nr. 368/2000, um söfnun, endurvinnslu og skilagjald á einnota umbúðir fyrir drykkjarvörur.

1. gr.

4. ml. 1. gr. orðist svo:

Skilagjald skal nema 14,02 kr. án virðisaukaskatts á hverja umbúðaeiningu.

2. gr.

2. gr. orðist svo:

Umsýsluþóknun skal leggja til viðbótar skilagjaldi á hverja umbúðaeiningu úr stáli, gleri og plastefni og skal fjárhæð hennar án virðisaukaskatts vera 5,00 kr. á umbúðir úr stáli, 4,30 kr. á umbúðir úr gleri stærri en 500 ml, 3,10 kr. á umbúðir úr gleri 500 ml og minni, 2,55 kr. á umbúðir úr lituðu plastefni og 1,01 kr. á umbúðir úr ólituðu plastefni.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 4. gr. laga nr. 52/1989 um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur og öðlast gildi 1. janúar 2014.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 20. desember 2013.

F. h. r.

Stefán Thors.

Björgvin Valdimarsson.

B deild - Útgáfud.: 30. desember 2013