Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 286/2014

Nr. 286/2014 21. mars 2014
AUGLÝSING
um breytingu á deiliskipulagi Laxatungu 62-68, Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 12. mars 2014 í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Leirvogstungu varðandi lóðirnar Laxatungu 62-68. Tillagan var grenndarkynnt 29. janúar til 27. febrúar 2014 og bárust ekki athugasemdir.
Í breytingunni felst að raðhús á lóðunum nr. 62-68 við Laxatungu verði einnar hæðar í stað tveggja, og lóðirnar stækki til austurs og suðurs á kostnað stíga, sem verði felldir út.
Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem lög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 21. mars 2014,

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 24. mars 2014