Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 840/2014

Nr. 840/2014 9. september 2014
REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 560/2014 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 798/2008 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði, svæði eða hólf, þaðan sem leyfður er innflutningur til Bandalagsins og umflutningur um Bandalagið á alifuglum og alifuglaafurðum, og um kröfur vegna heilbrigðisvottana fyrir dýr og dýraafurðir.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast fjórir nýir töluliðir, 21., 22., 23. og 24. tölul., svo­hljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 437/2013 frá 8. maí 2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 798/2008 að því er varðar færsluna fyrir Mexíkó í skránni yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði, svæði eða hólf þaðan sem leyft er að flytja tilteknar vörur inn til Sambandsins eða í umflutningi gegnum Sambandið.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 866/2013 frá 9. september 2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 798/2008 að því er varðar umflutning á sendingum af alifuglakjöti frá Hvíta-Rússlandi gegnum Litháen til rússneska yfirráðasvæðisins Kaliningrad.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1204/2013 frá 25. nóvember 2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 798/2008 að því er varðar færsluna fyrir Lýðveldið Moldóvu í skránum yfir þriðju lönd þaðan sem leyfður er aðflutningur á tilteknu kjöti, kjötafurðum, eggjum og eggjaafurðum til Sam­bands­ins.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 166/2014 frá 17. febrúar 2014 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 798/2008 að því er varðar kröfur varðandi útgáfu vottorða vegna innflutnings til Sambandsins á kjöti af öldum strút­fuglum til manneldis og færslurnar fyrir Ísrael og Suður-Afríku í skránni yfir þriðju lönd eða svæði.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerðir framkvæmdastjórnarinnar, sem taldar eru upp í 1. gr., eru birtar sem fylgiskjöl við reglugerð þessa.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, og lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

4. gr.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 9. september 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 23. september 2014