Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1153/2011

Nr. 1153/2011 30. nóvember 2011
AUGLÝSING
um gjald vegna þátttöku á vigtarmannanámskeiðum í Reykjavík.

Samkvæmt 24. gr. laga nr. 91/2006 um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn skal ráðherra ákveða gjald til að standa straum af kostnaði við framkvæmd prófa varðandi löggildingu vigtarmanna. Skal fjárhæðin taka mið að kostnaði af námskeiðum og framkvæmd prófsins.

Við námskeiðsgjald bætist löggildingargjald í samræmi við lög nr. 88/1991 um aukatekjur ríkissjóðs eins og það er á þeim tíma sem löggilding fer fram.

Námskeiðin skiptast í almennt námskeið og endurmenntunarnámskeið. Námskeiðsgjöld og löggildingargjöld fyrir námskeiðin sjást í meðfylgjandi töflu:

Texti

Námskeiðsgjald
kr.

Lögg. gjald
kr.

Samtals
kr.

Almennt námskeið

52.400

8.300

60.700

Endurmenntunarnámskeið

20.900

1.650

22.550

Aukakostnaður vegna námskeiða utan Reykjavíkur reiknast fyrir hvert tilvik og byggist á dagpeningum, ferðakostnaði og ferðatíma.

Auglýsing þessi tekur þegar gildi og jafnframt er úr gildi fallin auglýsing nr. 200/2010.

Innanríkisráðuneytinu, 30. nóvember 2011.

F. h. r.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Sigurbergur Björnsson.

B deild - Útgáfud.: 20. desember 2011