Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 252/2006

Nr. 252/2006 20. mars 2006

GJALDSKRÁ
Geislavarna ríkisins fyrir árið 2006.

1. gr.

Geislavarnir ríkisins innheimta gjald vegna lögbundins eftirlits með geislatækjum og geislavirkum efnum í samræmi við 5. og 17. gr. laga nr. 44/2002 um geislavarnir. Gjaldið skal vera sem hér segir:

1. Röntgentæki

a)

Föst röntgentæki til sjúkdómsgreiningar - myndataka

38.510

fyrir hvert tæki til viðbótar á sömu deild

12.870

b)

Föst röntgentæki til sjúkdómsgreiningar - skyggning

48.060

fyrir hvert tæki til viðbótar á sömu deild

16.090

c)

Tölvusneiðmyndatæki

64.150

fyrir hvert tæki til viðbótar á sömu deild

38.510

d)

Færanleg röntgentæki til sjúkdómsgreiningar - myndataka

32.080

fyrir hvert tæki til viðbótar á sömu deild

9.650

e)

Færanleg röntgentæki til sjúkdómsgreiningar - skyggning

38.510

fyrir hvert tæki til viðbótar á sömu deild

12.870

f)

Tannröntgentæki

19.200

fyrir hvert tæki til viðbótar

7.990

g)

Iðnaðarröntgentæki

32.100

fyrir hvert tæki til viðbótar

16.090

h)

Dýralækningaröntgentæki

32.100

fyrir hvert tæki til viðbótar

9.650

i)

Öryggisröntgentæki

22.420

fyrir hvert tæki til viðbótar

9.650

j)

Röntgentæki til efnarannsókna og öryggisgæslu

19.200

fyrir hvert tæki til viðbótar

6.440

2. Geislalækningatæki

44.950

fyrir hvert tæki til viðbótar á sömu deild

12.870

3. Geislavirk efni, opnar geislalindir

Rannsóknastofa í flokki A

51.280

Rannsóknastofa í flokki B

38.510

Rannsóknastofa í flokki C

25.640

4. Geislavirk efni, lokaðar geislalindir

Nifteindalindir

32.070

fyrir hverja nifteindalind til viðbótar hjá sama aðila

12.870

aðrar lokaðar geislalindir

25.640

fyrir hverja eins lind til viðbótar:

4 eða færri til viðbótar á sama stað

7.990

fyrir hverja lind umfram 5 á sama stað

6.440

5. Eftirlit með geislaálagi starfsfólks.

Filmumælingar, fyrir hverja filmu

530

2. gr.

Geislavarnir ríkisins innheimtir gjald vegna mats á umsóknum um leyfi í samræmi við 7., 9. og 20. gr. laga nr. 44/2002 um geislavarnir. Gjaldið skal vera sem hér segir :

1. Vegna röntgentækja til sjúkdómsgreiningar

a.

Leyfi vegna nýrra tækja

7.990

b.

Leyfi vegna breytinga á eldri búnaði

6.440

2. Vegna iðnaðar-, öryggis- og efnarannsóknatækja

Leyfi vegna nýrra tækja og v/ breytinga

6.440

3. Vegna lokaðra geislalinda

a.

Nifteindalindir

9.650

b.

Aðrar geislalindir

7.990

4. Vegna opinna geislalinda

a.

Ný starfsemi

i Flokkur A

12.870

ii Flokkur B

9.650

iii Flokkur C

6.440

b.

Árleg endurnýjun

i Flokkur A

6.960

ii Flokkur B

6.440

iii Flokkur C

4.770

3. gr.

Geislavarnir ríkisins annast innheimtu eftirlits- og leyfisgjalda. Eftirlitsgjöld önnur en vegna eftirlits með geislaálagi starfsfólks falla í gjalddaga 15. dag næsta mánaðar eftir útgáfu eftirlitsskýrslu. Leyfisgjöld falla í gjalddaga 15. dag næsta mánaðar eftir útgáfu leyfis.

Eftirlitsgjöld vegna eftirlits með geislaálagi starfsfólks á árinu 2005 falla í gjalddaga 1. apríl 2006.

4. gr.

Eigandi eða ábyrgðarmaður getur óskað eftir aukaeftirliti og skal þá greiða fyrir það sem um reglubundið eftirlit væri að ræða. Þurfi Geislavarnir ríkisins að endurtaka eftirlit vegna athugasemda sem gerðar voru við reglubundið eftirlit skal greiða fyrir það sem um reglubundið eftirlit væri að ræða.

5. gr.

Geislavarnir ríkisins innheimtir gjald sem nemur 6.410 kr./klst. fyrir veitta þjónustu og verkefni sem stofnuninni er falið að annast eða hún tekur að sér samkvæmt lögum og reglugerðum.

6. gr.

Eftirlits- og leyfisgjöld eru tryggð með lögveðsrétti í eftirlitsskyldum tækjum í 2 ár eftir gjalddaga.

7. gr.

Fyrir hverja mælingu á geislavirkni skal stofnunin innheimta gjald, allt að upphæð kr. 15.880. Fyrir hverja yfirlýsingu um geislavirkni sem stofnunin lætur í té, skal innheimta kr. 2.700.

8. gr.

Gjaldskrá þessi, sem sett er með heimild í 19. gr. laga nr. 44/2002 um Geislavarnir ríkisins, staðfestist hér með til þess að gilda á árinu 2006 og öðlast þegar gildi.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 20. mars 2006.

Siv Friðleifsdóttir.

Davíð Á. Gunnarsson.


B-deild - Útgáfud.: 4. apríl 2006

  Til baka