Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 376/2010

Nr. 376/2010 27. apríl 2010
REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 755/2008 um breytingu á viðauka II með tilskipun 2005/36/EB um viðurkenningu á menntun og hæfi í samræmi við ákvæði 11. gr. c (ii).

1. gr.

Reglugerð þessi er sett í samræmi við ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 127/2008, frá 5. desember 2008 um að fella inn í EES-samninginn og taka upp í innlendan rétt ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 755/2008 um breytingu á viðauka II með tilskipun 2005/36/EB um viðurkenningu á menntun og hæfi í samræmi við ákvæði 11. gr. c (ii).

2. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 755/2008, merkt fylgiskjal I, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á VII. viðauka við EES-samninginn, nr. 127/2008 frá 5. desember 2008, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5, 16. árg., bls. 1.

3. gr.

Ef ósamræmi er á milli íslensks og ensks texta reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 755/2008 skal skýra íslenska textann með hliðsjón af enska textanum.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 9. gr. laga nr. 26/2010 um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi, öðlast þegar gildi.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 27. apríl 2010.

Katrín Jakobsdóttir.

Ásta Magnúsdóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 30. apríl 2010