Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 612/2014

Nr. 612/2014 13. júní 2014
REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1374/2013 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS-staðal 36.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 108/2014, frá 16. maí 2014, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1374/2013 frá 19. desember 2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS-staðal 36.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) nr. 1374/2013 er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi ESB nr. 36/2014, 12. júní 2014 bls. 236.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 108/2014 er birt sem fylgiskjal með reglu­gerð þessari.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um árs­reikn­inga, skal gilda fyrir félög sem skylt er eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reiknings­skila­staðla og öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 13. júní 2014.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Valgerður Rún Benediktsdóttir.

Harpa Theodórsdóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 27. júní 2014