1. gr. Almennt um nefndina. Nefndin heitir undanþágunefnd og heyrir stjórnarfarslega undir samgönguráðherra. Nefndin fjallar um undanþágur til starfa á fiskiskipum, varðskipum og öðrum skipum samkvæmt f-, h- og i-lið 2. gr. laga um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna á íslenskum skipum, nr. 112/1984, með síðari breytingum eftir því sem nánar er kveðið á um í 21. gr. sömu laga og 8. gr. laga um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða á íslenskum skipum, nr. 113/1984, með síðari breytingum. 2. gr. Umsókn um undanþágu. Umsókn um undanþágu samkvæmt 3.–7. gr., skal senda undanþágunefnd á sérstöku eyðublaði sem nálgast má á heimasíðu Siglingastofnunar, á aðalskrifstofu og hjá lögskráningaraðilum. Umsókn skulu fylgja upplýsingar sem krafist er á eyðublaði. Þegar sótt er um undanþágu til starfs sem auglýsa ber í fjölmiðlum skal jafnframt fylgja fullnægjandi sönnun þess að starfið hafi verið auglýst svo sem kvittun fyrir greiðslu auglýsingar eða ljósrit af auglýsingu. Undanþágunefnd tekur umsókn um undanþágu að öllu jöfnu ekki til afgreiðslu fyrr en staðfesting á auglýsingu liggur fyrir og undanþágugjald hefur verið greitt. 3. gr. Störf skipstjóra. Undanþágur til skipstjórastarfa má veita án undangenginnar auglýsingar í slysa- og veikindatilvikum eða til afleysinga í allt að einn mánuð og þá til 1. stýrimanns viðkomandi skips, enda hafi hann a.m.k. 3ja mánaða siglingatíma á viðkomandi skipi sem stýrimaður eða til manns sem hefur skipstjóraréttindi næsta stigs fyrir neðan þau sem krafist er. Ef skortur er á mönnum með nægileg skipstjórnarréttindi er heimilt að veita skipstjórum undanþágu í allt að 6 mánuði, enda fullnægi þeir eftirtöldum skilyrðum eftir því sem við á: | a) | Sé skipið stærra en 200 rúmlestir, þá hafi þeir 200 rúmlesta skipstjóraréttindi og hafi starfað sem skipstjórar í a.m.k. 12 mánuði. Ekki er heimilt að veita undanþágu til skipstjórastarfa til manna sem hafa 200 brl. skipstjóraréttindi á stærri skip en 350 brl./500 bt. og einungis til siglinga og veiða á heimamiðum. | | b) | Sé skipið 81 til 200 rúmlestir, þá hafi þeir að minnsta kosti 80 rúmlesta réttindi og hafi starfað sem skipstjórar í a.m.k. 12 mánuði. | | c) | Sé skipið 80 rúmlestir eða minna þá hafi þeir a.m.k. 30 rúmlesta réttindi og hafi starfað sem skipstjórar í a.m.k. 12 mánuði, sjá viðauka I. |
4. gr. Störf yfirvélstjóra. Undanþágur til yfirvélstjórastarfa má veita án undangenginnar auglýsingar í slysa- og veikindatilvikum eða til afleysinga í allt að einn mánuð og þá til 1. vélstjóra eða vélavarðar viðkomandi skips. Vélstjórinn hafi a.m.k. næsta réttindastig fyrir neðan þau réttindi sem krafist er og a.m.k. 3 mánaða starfstíma á viðkomandi skipi. Vélavörðurinn hafi vélavarðarréttindi og a.m.k. 3 mánaða starfstíma á viðkomandi skipi. Ef skortur er á mönnum með nægileg réttindi, til að gegna starfi yfirvélstjóra, er heimilt að veita vélstjórum undanþágu í allt að 6 mánuði enda fullnægi þeir eftirfarandi skilyrðum eftir því sem við á: | a) | Hafi lokið námi til viðkomandi réttinda og a.m.k. helmingi af skilgreindum siglingatíma, eða | | | fyrir skip með 751 kW aðalvél og stærri; | | b) | hafi næsta réttindastig fyrir neðan þau réttindi sem krafist er á viðkomandi skip og hafi starfað a.m.k. 12 mánuði sem yfirvélstjóri, eða | | | fyrir skip með 375 til 750 kW aðalvél; | | c) | hafi vélavarðarréttindi og hafi starfað a.m.k. 9 mánuði sem vélavörður, þar af samkvæmt atvinnuréttindum VVY í 3 mánuði, eða | | | fyrir skip með 375 kW aðalvél og minni; | | d) | hafi lokið námi til vélavarðarréttinda eða hafi réttindi vélgæslumanns og hafi starfað a.m.k. 6 mánuði sem vélgæslumaður, sjá viðauka II. |
5. gr. Störf yfirstýrimanna. Undanþágur til yfirstýrimannastarfa má veita án undangenginnar auglýsingar í slysa- og veikindatilvikum eða til afleysinga í allt að einn mánuð og þá til stýrimanns sem hefur næsta réttindastig fyrir neðan þau réttindi sem þarf á viðkomandi skip. Ef skortur er á mönnum með nægileg stýrimannsréttindi er heimilt að veita stýrimönnum undanþágu í allt að 6 mánuði enda fullnægi þeir a.m.k. öðru eftirfarandi skilyrða: | a) | hafi lokið námi til viðkomandi réttinda en vanti siglingatíma eða, | | b) | hafi næsta réttindastig fyrir neðan þau réttindi sem þarf á viðkomandi skip og hafi starfað í a.m.k. 12 mánuði sem stýrimenn. |
6. gr. Störf stýrimanna. Undanþágur til stýrimannastarfa má veita án undangenginnar auglýsingar í slysa- og veikindatilvikum eða til afleysinga í allt að einn mánuð í senn, og þá til stýrimanns, sem hefur næsta réttindastig fyrir neðan þau réttindi, sem þarf á viðkomandi skip. Ef skortur er á mönnum með nægileg stýrimannsréttindi er heimilt að veita stýrimönnum undanþágu í allt að 6 mánuði í senn, enda fullnægi þeir a.m.k. öðru eftirfarandi skilyrða: | a) | hafi lokið námi til viðkomandi réttinda en vanti siglingatíma eða, | | b) | hafi næsta réttindastig fyrir neðan þau réttindi sem þarf á viðkomandi skip og hafi starfað í a.m.k. 12 mánuði sem stýrimenn. |
Heimilt er að veita einstaklingi sem stundar nám til stýrimannsréttinda undanþágu til starfa 2. stýrimanns í allt að 3 mánuði hafi viðkomandi a.m.k. 24 mánaða starfsreynslu sem bátsmaður, netamaður eða háseti. 7. gr. Störf undirvélstjóra. Undanþágur til undirvélstjórastarfa má veita án undangenginnar auglýsingar í slysa- og veikindatilvikum eða til afleysinga í einn mánuð, og þá til vélstjóra með næsta réttindastig fyrir neðan þau réttindi sem þarf á viðkomandi skip. Ef skortur er á mönnum með nægileg vélstjórnarréttindi er heimilt að veita vélstjórum undanþágu til starfa í allt að 6 mánuði, enda fullnægi þeir a.m.k. öðru eftirfarandi skilyrða: | a) | hafi lokið námi til viðkomandi réttinda og a.m.k. helmingi af skilgreindum siglingatíma sé um starf 1. vélstjóra að ræða, en a.m.k. fjórðungi af skilgreindum siglingatíma, sé um starf 2. vélstjóra að ræða; | | b) | hafi næsta réttindastig fyrir neðan þau réttindi sem þarf á viðkomandi skip og hafi að auki starfað 12 mánuði sem vélstjóri sé um starf 1. vélstjóra að ræða, en 3 mánuði sé um að ræða starf 2. vélstjóra. |
8. gr. Störf vélavarða. Undanþágur til vélavarðarstarfa má veita án undangenginnar auglýsingar í slysa- og veikindatilvikum eða til afleysinga í mánuð: | a) | til manna sem fæddir eru 1960 eða fyrr enda hafi þeir starfað á undanþágu í a.m.k. 8 mánuði; | | b) | til handhafa VM skírteinis. |
Ef skortur er á réttindamönnum er heimilt að veita undanþágu til vélavarðarstarfa í allt að 6 mánuði enda fullnægi þeir a.m.k. öðru eftirfarandi skilyrða: | a) | til manna sem fæddir eru fyrir 1. janúar 1956 og starfað hafa í 16 mánuði eða lengur á undanþágu sem vélstjóri eða vélavörður; | | b) | til handhafa VM skírteinis enda sé viðkomandi skráður til áframhaldandi vélstjórnarnáms. |
9. gr. Ýmis ákvæði. Þrátt fyrir ákvæði 4.-8. gr. hér að framan hefur undanþágunefnd heimild til að taka tillit til starfsreynslu og/eða annarrar skyldrar menntunar við mat á umsóknum til undanþágu til vélstjórnarstarfa eða skipstjórnarstarfa. 10. gr. Afturköllun undanþágu. Óski maður með tilskilin starfsréttindi eftir starfi undanþágumanns skal undanþágunefnd fella undanþáguna úr gildi. Afturköllun skal að jafnaði gilda frá þeim tíma er skipið kemur til hafnar, ef það er á sjó, enda sé réttindamaðurinn tilbúinn að taka við starfi undanþágumannsins þá þegar. 11. gr. Gildistaka. Reglur þessar, sem settar eru skv. 21. gr. laga nr. 112/1984 um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna á íslenskum skipum, með síðari breytingum og 8. gr. laga nr. 113/1984 um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða á íslenskum skipum, öðlast þegar gildi og birtast til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt falla úr gildi starfsreglur fyrir undanþágunefnd, nr. 417/2003. Samgönguráðuneytinu, 9. mars 2007. Sturla Böðvarsson. Ragnhildur Hjaltadóttir. VIÐAUKAR (sjá PDF-skjal)
|
B-deild - Útgáfud.:
26. mars 2007
|