Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur að undangenginni málsmeðferð skv. 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt eftirtaldar óverulegar breytingar á deiliskipulagi: Reykjahvoll 39 og 41. Breyting á „deiliskipulagi frá Reykjalundarvegi að Húsadal“ áður síðast breyttu 2. mars 2011. Skipulagsbreytingin felst í tilfærslu á lóðarmörkum milli þessara tveggja lóða, þannig að nr. 41 stækkar á kostnað nr. 39. Samþykkt í bæjarstjórn 21. desember 2011. Aðaltún 2-4 og 6-8. Breyting á deiliskipulagi Hlíðartúnshverfis sem samþykkt var 19. ágúst 1987. Skipulagsbreytingin felst í því að lóðir nr. 6 og 8 stækka til suðurs á kostnað óbyggðrar parhúsalóðar nr. 2-4, sem breytist í einbýlislóð. Samþykkt í bæjarstjórn 23. nóvember 2011. Ofangreindar breytingar á deiliskipulagi hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi. Mosfellsbæ, 10. janúar 2012. Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi. |