Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 820/2013

Nr. 820/2013 28. ágúst 2013
SAMÞYKKT
um afgreiðslur byggingarnefndar Fjarðabyggðar.

1. gr.

Byggingarfulltrúi Fjarðabyggðar fer með verkefni sem mælt er fyrir um í lögum nr. 160/2010 um mannvirki og ákvæðum í þeim reglugerðum sem settar eru á grundvelli laganna, þar á meðal útgáfu byggingarleyfa.

2. gr.

Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis af hálfu byggingarfulltrúa samkvæmt III. kafla laga um mannvirki er að eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hafi samþykkt útgáfuna, en eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd annast verkefni byggingarnefndar, sbr. samþykkt nr. 567/2013 um stjórn Fjarðabyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar og 7. gr. laga um mannvirki.

3. gr.

Byggingarfulltrúi skal hafa samráð við eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd um hvert það mál sem hann telur að varði verksvið nefndarinnar.

Byggingarfulltrúi skal leita samþykkis eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar áður en byggingarleyfi er veitt, varði breyting á mannvirki útlit þess og form, nema breyting sé óveruleg, sbr. 5. mgr. 9. gr. laga um mannvirki.

4. gr.

Um málsmeðferð gilda að öðru leyti, eftir því sem við á, ákvæði sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, laga nr. 160/2010 um mannvirki, skipulagslaga, nr. 123/2010, samþykktar nr. 567/2013 um stjórn Fjarðabyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar og stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.

5. gr.

Samþykkt þessi, sem bæjarstjórn Fjarðabyggðar hefur sett samkvæmt ákvæðum 7. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt nr. 824/2003 um afgreiðslu byggingarfulltrúa Fjarðabyggðar.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 28. ágúst 2013.

F. h. r.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Hafsteinn Pálsson.

B deild - Útgáfud.: 11. september 2013