1. gr. Með vísan til 24. og 25. gr. laga um grunnskóla, nr. 91/2008, með áorðnum breytingum, staðfestir mennta- og menningarmálaráðherra hér með greinasvið aðalnámskrár grunnskóla, sem birt er á heimasíðu mennta- og menningarmálaráðuneytis. Aðalnámskrá grunnskóla hefur verið birt með auglýsingu nr. 760/2011. 2. gr. Greinasvið grunnskólans skiptist í níu kafla. Fyrst er sérstakur kafli um lykilhæfni þvert á öll greinasvið og síðan eru átta kaflar um greinasvið fyrir námssvið og einstakar námsgreinar grunnskóla, í samræmi við ákvæði laga um grunnskóla. Jöfnum höndum er lögð áhersla á almenna lykilhæfni og sértæka hæfni fyrir viðkomandi grein eða svið. Í köflunum er fjallað um menntagildi og megintilgang, hæfniviðmið, kennsluhætti og námsmat. Birt eru hæfniviðmið við lok 4., 7. og 10. bekkjar og matsviðmið við lok 10. bekkjar í flestum greinasviðum. Á grundvelli hæfniviðmiða velja kennarar og nemendur kennsluaðferðir, námsefni og matsaðferðir og skal gera grein fyrir þeim í skólanámskrá viðkomandi skóla. Greinasviðin bera þessi heiti: Inngangskafli Lykilhæfni Íslenska Erlend tungumál List- og verkgreinar Náttúrugreinar Skólaíþróttir Samfélagsgreinar Stærðfræði Upplýsinga- og tæknimennt.
3. gr. Auglýsing þessi öðlast þegar gildi. Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 15. apríl 2013. Katrín Jakobsdóttir. Ásta Magnúsdóttir. |