Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 141/2015

Nr. 141/2015 11. febrúar 2015
AUGLÝSING
um breytingu á deiliskipulagi Leirvogstungu, Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 28. janúar 2015 í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi sem varðar lóðirnar nr. 47 og 49 við Kvíslartungu. Tillagan var grenndarkynnt 27. nóvember til 29. desember 2014 og bárust ekki athugasemdir.
Í breytingunni felst að íbúðarhluti parhúsa á lóðunum lækkar og verður ein hæð í stað tveggja.
Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem lög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 11. febrúar 2015,

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 13. febrúar 2015