Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
1196/2008
|
1. gr. 3. gr. orðast svo: Upphæð vasapeninga er 41.895 kr. á mánuði. Tekjur skulu hafa áhrif á fjárhæð vasapeninga á þann hátt að 65% af tekjum hlutaðeigandi dragast frá fjárhæð þeirra og falla greiðslur alveg niður við tekjur sem nema 773.446 kr. á ári. Með tekjum er átt við tekjur eins og þær eru skilgreindar í 16. gr. laga um almannatryggingar og um tekjuútreikning fer samkvæmt sömu grein. 2. gr. Í stað „741.582 kr.“ í 4. gr. kemur: 812.774 kr. 3. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 10. mgr. 48. gr., sbr. 70. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2009. Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 23. desember 2008. Jóhanna Sigurðardóttir. Ágúst Þór Sigurðsson.
|
B-deild - Útgáfud.:
30. desember 2008
|