Flugmálastjórn Íslands hefur ákveðið að frá og með 20. ágúst 2009 skuli eftirfarandi taka gildi gagnvart umsækjendum um skírteini flugliða og handhöfum þeirra: Kröfur um fjölstjórnarskírteini (Multi-Crew Licence - MPL(A)) skv. JAR-FCL 1 um skírteini flugliða, 7. breyting frá 1. desember 2007, kafli K, og öll þau ákvæði í JAR-FCL 1 þar sem vísað er í kafla K. Aðrir kaflar JAR-FCL 1 voru innleiddir í íslenskan rétt með reglugerð nr. 401/2008 um skírteini flugliða á flugvél. Fjölstjórnarskírteini sem gefin hafa verið út af aðildarríkjum JAA skv. kröfum JAR-FCL 1, skulu gilda á Íslandi og heimila handhöfum þeirra að stjórna loftförum skráðum á Íslandi. Flugmálastjórn Íslands er heimilt að veita undanþágu frá reglugerð nr. 401/2008 um skírteini flugliða á flugvél, reglugerð nr. 402/2008 um skírteini flugliða á þyrlu og reglugerð nr. 403/2008 um heilbrigðiskröfur flugliða skv. JAR-FCL 1.045, JAR-FCL 2.045 og JAR-FCL 3.045. Slíkar undanþágur skulu vera í samræmi við það sem fram kemur á lista um langtímaundanþágur frá kröfum JAR-FCL frá desember 2007 (Overview – Long Term Exemption – December 2007) sem birtur er á heimasíðu JAA.
Með vísan til 140. gr. laga nr. 60/1998 um loftferðir með síðari breytingum og reglugerðar um flugmálahandbók útgefna af Flugmálastjórn Íslands nr. 326/2000 er ákvörðun þessi birt í flugmálahandbók Flugmálastjórnar Íslands, 3. deild (Ákvarðanir Flugmálastjórnar Íslands). Auglýsingin öðlast þegar gildi. Reykjavík, 17. ágúst 2009. Pétur K. Maack flugmálastjóri. |