Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
1208/2008
|
1. gr. Hámarksábyrgð á kröfum launamanna skv. a- og b-lið 5. gr. laga um Ábyrgðasjóð launa, nr. 88/2003, skal vera 374.000 kr. miðað við hvern mánuð. Hámarksábyrgð á kröfum skv. c-lið 5. gr. laganna skal vera 599.000 kr. 2. gr. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 1. mgr. 6. gr. laga um Ábyrgðasjóð launa, nr. 88/2003, öðlast gildi 1. janúar 2009. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 1254/2007, um hámark ábyrgðar Ábyrgðasjóðs launa. Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 23. desember 2008. Jóhanna Sigurðardóttir. Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.
|
B-deild - Útgáfud.:
31. desember 2008
|