Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 19. febrúar 2014 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt tillögu að breytingum á deiliskipulagi, sem taka til tiltekinna lóða við austurhluta Vogatungu, og einnar raðhúsalengju við Laxatungu. Meginbreytingar eru þær, að húsgerðir breytast frá því að vera tveggja hæða rað- og parhús í einnar hæðar hús. Íbúðum fækkar við þetta um tvær frá gildandi skipulagi, úr 50 íbúðum í 48. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem lög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi. F.h. Mosfellsbæjar, 10. apríl 2014, Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi. |