Samkvæmt 24. gr. laga nr. 91/2006 um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn skal ráðherra ákveða gjald til að standa straum af kostnaði við framkvæmd prófa varðandi löggildingu vigtarmanna. Skal fjárhæðin taka mið af kostnaði vegna námskeiða og framkvæmd prófsins. Við námskeiðsgjald bætist löggildingargjald í samræmi við lög nr. 88/1991 um aukatekjur ríkissjóðs eins og það er á þeim tíma sem löggilding fer fram.* Námskeiðin eru tvenns konar, þ.e. almennt námskeið og endurmenntunarnámskeið, en síðarnefnda námskeiðið verður ekki í boði fyrr en 2016. Neðangreint námskeiðsgjald og löggildingargjald gildir því aðeins fyrir almennt námskeið: Texti | Námskeiðs- gjald | Löggildingar-gjald* | Samtals | Almennt námskeið | 55.700 kr. | 8.300 kr. | 64.000 kr. |
Aukakostnaður vegna námskeiða utan Reykjavíkur reiknast fyrir hvert tilvik og byggist á dagpeningum, ferðakostnaði og ferðatíma. Auglýsing þessi tekur þegar gildi og jafnframt er úr gildi fallin auglýsing nr. 1153/2011. Innanríkisráðuneytinu, 6. maí 2014. F. h. r. Ragnhildur Hjaltadóttir. Sigurbergur Björnsson. |