Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 536/2013

Nr. 536/2013 28. maí 2013
AUGLÝSING
um breyting á reglum nr. 1181/2012, um skattmat vegna tekna manna tekjuárið 2013.

1. gr.

Í stað fjárhæðanna „114,80", „132,02" og „166,46" í kafla 3.1 Frádráttur kostnaðar á móti ökutækjastyrk, kemur: 116, 133,40 og 168,20.

2. gr.

Eftirfarandi breyting verður á fjárhæðum vegna dagpeninga innanlands í kafla 3.2 Frá­dráttur á móti dagpeningum:

 

kr.    

Fyrir gistingu og fæði í einn sólarhring

29.400

Fyrir gistingu í einn sólarhring

18.600

Fyrir fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag

10.800

Fyrir fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag

5.400

3. gr.

Auglýsing þessi, sem sett er með stoð í 118. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlast gildi og kemur til framkvæmda frá og með 1. júní 2013.

Reykjavík, 28. maí 2013.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.

Ingvar J. Rögnvaldsson.

B deild - Útgáfud.: 11. júní 2013