Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1080/2007

Nr. 1080/2007 1. nóvember 2007

SAMÞYKKT
fyrir Veiðifélag Selfljóts.

1. gr.

Nafn félagsins er Veiðifélag Selfljóts.

2. gr.

Heimili þess og varnarþing er þar sem formaður þess er búsettur hverju sinni.

3. gr.

Félagsmenn eru skráðir eigendur/ábúendur jarða og landareigna, sem land eiga að Selfljóti, Gilsá, Unalæk, Núpsá, Hurðarbaksá, Staðará og Gerðisá, Bjarglandsá og Jökulsá, svo langt sem þær teljast fiskgengar, en þær eru:

Unaós, Heyskálar, Hrafnabjörg, Þórsnes, Sandbrekka, Dalir I, Dalir II, Hjarðar­hvoll (Kóreksstaðagerði), Kóreksstaðir (Sigtún), Jórvík, Svínafell, Hjaltastaður I, Hjaltastaður II, Grænahlíð, Rauðholt, Hreimsstaðir, Nýbýlalönd V og VI, Hjartar­staðir I, Hjartarstaðir II, Brennistaðir I, Brennistaðir II, Gilsárteigur I, Gilsár­teigur II, Ormsstaðir, Eiðar, Hleinargarður, Ketilsstaðir, Ártún, Hlégarður, Nýbýla­land III, Kvisthagi, Laufás, Bóndastaðir, Hrollaugsstaðir, Klúka, Engilækur og Gagnstöð.

4. gr.

Verkefni félagsins er að viðhalda góðri fiskgengd á félagssvæðinu og stuðla að sjálfbærri nýtingu fiskstofna. Því ber einnig að stuðla að góðri nýtingu og arðsemi veiðihlunninda á félagssvæðinu og gæta hagsmuna félagsmanna í hvívetna. Félagið tekur til allrar veiði á félagssvæðinu og ráðstafar henni í samræmi við ákvörðun félagsfundar. Heimilt er að nýta tiltekna daga þannig að þá sé veiðiréttareigendum heimilt að veiða í ánni. Félags­fundur skal setja reglur um stangafjölda og veiðitíma á þeim dögum sem öðrum. Ákvörðun um framsal veiðiréttar til utanaðkomandi aðila skal hljóta 2/3 hluta atkvæða á félagsfundi, sbr. 8. gr. Félaginu ber að vernda vistkerfi vatnafiska á félagssvæðinu og koma í veg fyrir að verklegar framkvæmdir eða önnur starfsemi skaði lífríki þess. Félag­inu er heimilt að stunda fiskrækt í samræmi við gilda fiskræktaráætlun á hverjum tíma.

5. gr.

Stjórn félagsins skipa þrír menn, formaður og meðstjórnendur. Skulu þeir kosnir á aðalfundi til þriggja ára í senn. Stjórnarmenn skulu eiga aðild að félaginu eða starfa í umboði þeirra sem getið er í 3. gr. Stjórnarmenn ganga úr stjórninni á víxl þannig: formaður gengur út eftir eitt ár, annar meðstjórnandi gengur út eftir tvö ár, hinn eftir þrjú ár og helst svo sama röð áfram.

Formaður er kosinn á aðalfundi en að öðru leyti skipta stjórnarmenn með sér verkum. Enginn atkvæðisbær félagsmaður getur skorast undan kosningu nema sérstök forföll hamli, eða ef hann hefur verið í stjórn í þrjú ár. Kjósa skal þrjá varamenn til eins árs í senn. Kjósa skal tvo skoðunarmenn og einn skoðunarmann til vara ár hvert.

6. gr.

Stjórnin hefur á hendi allar framkvæmdir félagsins milli aðalfunda. Aðalfundur ákveður þóknun fyrir störf stjórnar. Hún fær menn sér til aðstoðar við þau störf í þágu félagsins, sem vinna þarf á hverjum tíma og semur við þá um þóknun fyrir. Formaður er fulltrúi félagsins út á við og hefur yfirumsjón með öllum störfum félagsins og fjárreiðum. Óheimilt er öllum að veiða á félagssvæðinu nema með skriflegu leyfi félagsstjórnar eða aðila sem veitir slík leyfi í umboði hennar. Í leyfinu skal tekið fram um veiðitíma og veiði­tæki og með hvaða kjörum leyfið er veitt.

7. gr.

Stjórnarmenn skulu víkja sæti við meðferð þeirra mála félagsins sem snerta hagsmuni þeirra eða venslamanna þeirra sérstaklega umfram aðra félagsmenn. Þeir skulu haga störfum sínum þannig að jafnræðis sé gætt meðal félagsmanna. Stjórn félagsins skal gæta andmælaréttar félagsmanns áður en mál sem snertir hagsmuni tiltekins félagsmanns umfram aðra félagsmenn er tekið til afgreiðslu á stjórnarfundi. Stjórn félagsins skal ætíð gæta þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun í því er tekin.

Rísi ágreiningur um lögmæti ákvörðunar félagsstjórnar eða fundar í félaginu getur félagsmaður kært ákvörðunina til Landbúnaðarstofnunar. Kærufrestur er þrír mánuður frá því að ákvörðunin var tekin.

8. gr.

Fundi í félaginu skal boða skriflega með dagskrá eigi síðar en 10 dögum fyrir fundardag. Skylt er að boða fundi í félaginu með ábyrgðarbréfi, ef breyta á samþykktum félagsins eða ráðstafa veiði á félagsfundi. Afl atkvæða ræður úrslitum mála á fundum. Þó verður breyting á samþykkt eða arðskrá að hljóta samþykki 2/3 atkvæðisbærra félagsmanna. Nú verður breyting á samþykkt eða arðskrá ekki afgreidd vegna ófullnægjandi fundar­sóknar og má þá boða til annars fundar. Á þeim fundi ræður afl atkvæða.

Nú er ráðgert að breyta samþykkt, arðskrá eða ráðstafa veiði og skal þess getið í fundar­boði. Ef lagt er fyrir fund í veiðifélaginu að ráðast vegna starfsemi félagsins í fram­kvæmdir, sem hafa fjárútlát í för með sér er nema a.m.k. 25% af tekjum félags af veiði á því starfsári, getur hver félagsmaður krafist þess að ákvörðun ráðist með greiðslu atkvæða er hafi vægi í samræmi við arðskrá félagsins. Gildir þá hver eining í arðskrá sem eitt atkvæði, sbr. 40. gr. laga nr. 61/2006. Greiða má atkvæði skriflega enda sé þess getið í fundargerðabók.

Á félagsfundi skal leggja fram skrá yfir atkvæðisbæra félagsmenn. Umboð sem lögð eru fram á fundi skulu skráð í fundargerðabók.

9. gr.

Aðalfund skal halda eigi síðar en 1. júní ár hvert. Á aðalfundi skýrir stjórnin frá störfum félagsins á liðnu starfsári og leggur fram tillögur um starfsemi þess á næsta ári ásamt fjárhagsáætlun félagsins fyrir komandi starfsár. Þá skal hún leggja fram endurskoðaða reikninga félagsins og ályktar fundurinn um þá. Aukafundi skal halda eftir þörfum eða ef ¼ félagsmanna æskir þess skriflega og tilgreinir fundarefnið.

10. gr.

Reikningsár félagsins er almanaksárið. Stjórninni ber að færa reikningana í gerðabók, sem henni er skylt að halda, svo og samþykktir félagsins, félagaskrá, arðskrá og fundar­gerðir.

11. gr.

Arði af sameiginlegri veiði skal skipt niður á félagsmenn samkvæmt arðskrá. Félagsmenn greiða gjöld til félagsins í sömu hlutföllum og þeir taka arð.

12. gr.

Um brot á samþykkt þessari og viðurlög fer eftir VIII. kafla laga nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði.

13. gr.

Samþykkt þessi staðfestist samkvæmt 39. gr. laga nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt falla úr gildi eldri sam­þykktir veiðifélagsins.

Landbúnaðarstofnun, 1. nóvember 2007.

Viktor S. Pálsson, forstöðumaður stjórnsýslusviðs.


B-deild - Útgáfud.: 21. nóvember 2007

  Til baka