Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 522/2014

Nr. 522/2014 22. maí 2014
REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu nr. 281/2014.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu nr. 281/2014 hljóði svo:

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr. Gerðirnar, ásamt viðaukum, eru birtar sem fylgiskjöl við reglugerð þessa:

1)

 

Ákvörðun ráðsins 2014/119/SSUÖ frá 5. mars 2014 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástands­ins í Úkraínu;

2)

 

Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 208/2014 frá 5. mars 2014 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástands­ins í Úkraínu;

3)

 

Ákvörðun ráðsins 2014/145/SSUÖ frá 17. mars 2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálf­stæði Úkraínu;

4)

 

Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 269/2014 frá 17. mars 2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálf­stæði Úkraínu;

5)

 

Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2014/151/SSUÖ frá 21. mars 2014 um fram­kvæmd ákvörðunar 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu;

6)

 

Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 284/2014 frá 21. mars 2014 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu;

7)

 

Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2014/238/SSUÖ frá 28. apríl 2014 um fram­kvæmd ákvörðunar 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu;

8)

 

Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 433/2014 frá 28. apríl 2014 um fram­kvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu;

9)

 

Ákvörðun ráðsins 2014/265/SSUÖ frá 12. maí 2014 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu;

10)

 

Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 476/2014 frá 12. maí 2014 um breytingu á reglu­gerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu;

11)

 

Framkvæmdarreglugerð ráðsins nr. 477/2014 frá 12. maí 2014 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu.

2. gr.

Fylgiskjöl.

Gerðir sem vísað er til í 1. og 2. tölul. 1. gr. eru birtar sem fylgiskjöl 1 og 2 við reglugerð nr. 281/2014, gerðir skv. 3. og 4. tölul. eru birtar sem fylgiskjöl 1 og 2 við reglugerð nr. 287/2014, gerðir skv. 5. og 6. tölul. eru birtar sem fylgiskjöl 1 og 2 við reglugerð nr. 330/2014 og gerðir skv. 7. – 11. tölul. eru birtar sem fylgiskjöl 1 – 5 við reglugerð þessa.

3. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving-unaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 22. maí 2014.

Gunnar Bragi Sveinsson.

Einar Gunnarsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 4. júní 2014