Samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, og að fengnum tillögum umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar hefur lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu ákveðið eftirfarandi: Að stöðubann verði við norður- og suðurkant Skothúsvegar frá Suðurgötu að Fríkirkjuvegi. Að stöðubann verði við suðurkant Njarðargötu frá Þórsgötu að Eiríksgötu. Að stöðubann verði við vesturkant Orrahóla frá Krummahólum að bílastæði í suðurenda götunnar og við austurkant frá innkeyrslu að Orrahólum 7 að Norðurhólum. Að stöðubann verði í Flúðaseli beggja vegna götunnar frá Seljabraut vestur fyrir Fjarðarsel og að beygju í Flúðaseli.
Stöðubannið er táknað með umferðarmerkinu B21.11. - Að einstefna verði á Bergstaðastræti til norðurs frá Skólavörðustíg að Laugavegi.
Ákvörðun þessi tekur gildi við birtingu auglýsingarinnar. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, 5. júlí 2013. Stefán Eiríksson. |