Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 621/2009

Nr. 621/2009 2. júlí 2009

SAMÞYKKT
fyrir Veiðifélag Selár í Vopnafirði.

1. gr.

Nafn félagsins er Veiðifélag Selár í Vopnafirði, kt. 560299-2579.

2. gr.

Heimili þess og varnarþing er þar sem formaður þess er búsettur hverju sinni.

3. gr.

Félagsmenn eru allir þeir sem skráðir eru veiðiréttarhafar eftirfarandi jarða og landeigna sem land eiga að Selá eða veiðirétt eiga í henni neðan foss við Selárós og fiskgengum lækjum sem í hana falla samkvæmt skrá Fiskistofu þar um, sbr. ákvæði 1. tl. 12. gr. laga um lax- og silungsveiði nr. 61/2006.

Þær jarðir sem land eiga að Selá eru: Hámundarstaðir 1 og 3, Hámundarstaðir 2, Há­mundar­staðir 4, Hvammsgerði, Hróaldsstaðir 1, Hróaldsstaðir 2, Áslaugarstaðir, Leifs­staðir, Þorvaldsstaðir, Hamar, Mælifell, Hauksstaðir, Rjúpnafell, Fremri-Hlíð, Ytri-Hlíð 1, Ytri-Hlíð 2, Vakursstaðir 1 og 3, Fagurhóll, Lýtingsstaðir, Breiðamýri, Fremri-Nýpur, Ytri-Nýpur.

4. gr.

Um atkvæðisrétt í félaginu fer samkvæmt ákvæðum 40. gr. laga nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði.

5. gr.

Verkefni félagsins er að viðhalda góðri fiskgengd á félagssvæðinu og stuðla að sjálfbærri nýtingu fiskstofna. Félagið tekur til allrar veiði á félagssvæðinu og ráðstafar henni í samræmi við samþykkt félagsfundar.

Félaginu ber einnig að vernda vistkerfi vatnafiska á félagssvæðinu og koma í veg fyrir að verklegar framkvæmdir eða önnur starfsemi skaði lífríki þess. Félaginu er heimilt að stunda fiskrækt í samræmi við gilda fiskræktaráætlun á hverjum tíma.

6. gr.

Stjórn félagsins skipa fimm menn, formaður og fjórir meðstjórnendur. Skulu þeir kosnir á aðalfundi til þriggja ára í senn. Formaður skal kosinn beinni kosningu. Stjórnarmenn ganga úr stjórninni á víxl eins og 2. mgr. 4. gr. reglugerðar um starfsemi veiðifélaga nr. 1024/2006 mælir fyrir um.

Kjósa skal tvo varamenn og tvo skoðunarmenn til tveggja ára í senn, þannig að annar varamaðurinn og annar skoðunarmaðurinn gangi út annað árið, og hinir hitt árið.

Félagið skal kjósa löggiltan endurskoðanda.

7. gr.

Stjórnin hefur á hendi allar framkvæmdir félagsins milli aðalfunda. Aðalfundur ákveður þóknun fyrir störf stjórnar. Hún fær menn sér til aðstoðar við þau störf í þágu félagsins, sem vinna þarf á hverjum tíma og semur við þá um þóknun fyrir. Formaður er fulltrúi félagsins út á við og hefur yfirumsjón með öllum störfum félagsins og fjárreiðum.

Óheimilt er öllum að veiða á félagssvæðinu, nema með skriflegu leyfi félagsstjórnar eða aðila sem veitir slík leyfi í umboði hennar. Í leyfinu skal tekið fram um veiðitíma og veiðitæki, og með hvaða kjörum leyfið er veitt.

8. gr.

Stjórnarmenn skulu víkja sæti við meðferð þeirra mála félagsins sem snerta hagsmuni þeirra eða venslamanna þeirra sérstaklega umfram aðra félagsmenn. Þeir skulu haga störfum sínum þannig að jafnræðis sé gætt meðal félagsmanna. Stjórn félagsins skal gæta andmælaréttar félagsmanns áður en mál sem snertir hagsmuni tiltekins félagsmanns umfram aðra félagsmenn er tekið til afgreiðslu á stjórnarfundi. Stjórn félags skal ætíð gæta þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun í því er tekin.

Rísi ágreiningur um lögmæti ákvörðunar félagsstjórnar eða fundar í félaginu getur félagsmaður kært ákvörðunina til Fiskistofu. Kærufrestur er þrír mánuðir frá því að ákvörðunin var tekin.

9. gr.

Fundi í félaginu skal boða skriflega með dagskrá eigi síðar en 10 dögum fyrir fundardag. Skylt er að boða fundi í félaginu með ábyrgðarbréfi ef breyta á samþykktum félagsins eða ráðstafa veiði á félagsfundi. Afl atkvæða ræður úrslitum mála á fundum. Þó verður breyting á samþykkt eða arðskrá að hljóta samþykki 2/3 atkvæðisbærra félagsmanna. Nú verður breyting á samþykkt eða arðskrá ekki afgreidd vegna ófullnægjandi fundarsóknar, og má þá boða til annars fundar. Á þeim fundi ræður afl atkvæða. Stjórn félagsins boðar til félagsfunda á milli aðalfunda telji hún þess þörf. Einnig er henni skylt að boða til félagsfunda ef 1/3 hluti félagsmanna óskar þess.

Nú er ráðgert að breyta samþykkt, arðskrá eða ráðstafa veiði og skal þess getið í fundarboði. Nú fer atkvæðagreiðsla fram á fundi skv. fyrirmælum 7. mgr. 40. gr. laga nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði og gildir þá ein eining í arðskrá hjá félagsmanni sem hefur atkvæðisrétt, sem eitt atkvæði, sbr. 1. mgr. 40. gr. sömu laga. Greiða má atkvæði skriflega, enda sé þess getið í fundarbók.

Á félagsfundi skal leggja fram skrá yfir atkvæðisbæra félagsmenn. Umboð sem lögð eru fram á fundi skulu skráð í fundargerðabók.

10. gr.

Aðalfund skal halda eigi síðar en 10. maí ár hvert. Á aðalfundi skýrir stjórnin frá störfum félagsins á liðnu starfsári og leggur fram tillögur um starfsemi þess á næsta ári ásamt fjárhagsáætlun félagsins fyrir komandi starfsár. Þá skal hún leggja fram endurskoðaða reikninga félagsins og ályktar fundurinn um þá, allt samkvæmt eftirfarandi dagskrá. Aðalfundur er æðsta vald í málefnum félagsins.

Á aðalfundi skal:

 

a)

Leggja fram skrá um atkvæði á fundinum, sbr. 9. gr.

 

b)

Flytja skýrslu stjórnar.

 

c)

Leggja fram reikninga félagsins áritaða af endurskoðanda og skoðunarmönnum.

 

d)

Staðfesta reikninga félagsins.

 

e)

Afgreiða tillögur um breytingar á samþykktum félagsins ef einhverjar eru.

 

f)

Leggja fram rekstraráætlun fyrir komandi starfsár.

 

g)

Kjósa stjórnarmenn, endurskoðanda og skoðunarmenn sbr. 4. gr.

 

h)

Kjósa fulltrúa á aðalfund Landssambands Veiðifélaga.

 

i)

Taka til afgreiðslu önnur mál er varða félagið og löglega eru upp borin.

11. gr.

Reikningsár félagsins er almanaksárið. Stjórninni ber að færa niðurstöðutölur árs­reikn­ing­anna í gerðabók, sem henni er skylt að halda, svo og samþykktir félagsins, félaga­skrá, arðskrá og fundargerðir.

12. gr.

Arði af sameiginlegri veiði skal skipt niður á félagsmenn samkvæmt arðskrá. Félagsmenn greiða gjöld til félagsins í sömu hlutföllum og þeir taka arð.

13. gr.

Samþykkt þessi staðfestist samkvæmt 39. gr. laga nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Jafnframt falla úr gildi eldri samþykktir veiðifélagsins.

Fiskistofu, 2. júlí 2009.

Árni Ísaksson,
forstöðumaður lax- og silungsveiðisviðs.


B-deild - Útgáfud.: 16. júlí 2009

  Til baka