Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1272/2007

Nr. 1272/2007 16. nóvember 2007

GJALDSKRÁ
fyrir Hafnarsjóð Skagafjarðar.

Almenn ákvæði.

1. gr.

Gjaldskrá þessi fyrir Sauðárkrókshöfn, Hofsóshöfn og Haganesvíkurhöfn er sett skv. heimild í 17. gr. hafnalaga nr. 61/2003 ásamt breytingu með lögum nr. 28/2007.

Gjaldskráin er við það miðuð að hafnirnar geti haft nægar tekjur til þess að standa undir rekstri, sbr. 5. tölulið 3. gr. hafnalaga.

Um gjaldtöku tengda stærð skipa.

2. gr.

Við ákvörðun gjalda, sem taka mið af stærð skipa, skal miða við brúttótonnatölu skipa samkvæmt alþjóðlegu mælingarbréfi, sem gefið er út í samræmi við alþjóðasamþykktina um mælingu skipa frá 1969.

3. gr.

Af öllum skipum skal greiða tilheyrandi gjöld til hafnarsjóðs ef þau koma inn fyrir takmörk hafnarinnar og njóta þjónustu hennar.

Skipagjöld.

4. gr.

Lestargjöld.

Af öllum skipum skal greiða lestargjald, kr. 10,75 á mælieiningu skv. 2. gr. en þó ekki oftar en tvisvar í mánuði. Undanþegin greiðslu lestargjalds eru herskip, varðskip og skip sem gerð eru út til vísindalegra rannsókna, svo og skip sem leita hafnar vegna sjóskaða eða til að láta í land sjúka menn eða látna, svo fremi þau hljóti ekki aðra þjónustu.

Bryggjugjöld.

Af öllum skipum sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka skal greiða samkvæmt eftirfarandi:

Skip við bryggju kr. 4,90 á mælieiningu fyrir hverja byrjaða 24 tíma, sem skip liggur bundið.

Heimilt er að taka lestar- og bryggjugjald af fiskiskipum allt að 100 brt. og minni bátum, sem mánaðargjald, kr. 65,50 á mælieiningu, en þó aldrei lægra en kr. 6.550 á mánuði. Bátar minni en 20 brt. greiða þó aldrei lægra en kr. 5.145 á mánuði. Undanþegin greiðslu bryggjugjalds eru herskip, varðskip og skip, sem gerð eru út til vísindalegra rannsókna, svo og skip sem leita hafnar vegna sjóskaða eða til að láta í land sjúka menn eða látna, svo fremi þau hljóti ekki frekari þjónustu.

Árgjald báta 0-20 brt. er kr. 38.065.

Vörugjöld.

5. gr.

Vörugjald skal greiða af öllum vörum sem fluttar eru af skipsfjöl á land eða úr landi á skipsfjöl, eða úr einu skipi í annað, innan takmarka hafnarinnar, þó með þeim undantekningum er síðar getur.

6. gr.

Fyrir vörur sem samkvæmt farmskrá skips eru ákveðnar til annarrar hafnar, innlendrar eða erlendrar, en eru látnar á land um stundarsakir, skal aðeins greitt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land. Undanþegnar þessu gjaldi eru vörur sem látnar eru á land um stundarsakir vegna skemmda á skipi.

7. gr.

Af vörum, sem fluttar eru á skip og fara eiga til annarra hafna innanlands greiðist hálft vörugjald.

Af vörum sem koma frá útlöndum og fara eiga áfram til útlanda er heimilt að innheimta fullt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar á land.

8. gr.

Þessar vörur eru algjörlega undanþegnar vörugjaldi:

a) Umbúðir sem endursendar eru.
b) Olía, vistir og aðrar nauðsynjar skipa til eigin notkunar.
c) Almennar póstsendingar og farangur ferðamanna.
d) Úrgangur til eyðingar.

9. gr.

Vörugjald reiknast eftir þyngd eða verðmæti, með umbúðum og af hverri sendingu sérstaklega. Fara skal eftir farmskrá skipa við útreikning vörugjalds. Skipstjóri eða afgreiðslumaður skips skal láta höfninni í té afrit af farmskrá. Sé engri farmskrá til að dreifa skal skipstjóri gefa drengskaparvottorð um vörumagn sem fermt hefur verið eða affermt úr skipi hans. Þyki hafnarstjóra ástæða til getur hann hvenær sem er látið ákveða vörumagnið á þann hátt sem hann telur hentugast. Reynist vörumagnið vera meira en upp er gefið greiðir farmeigandi kostnaðinn.

Séu fleiri en ein vörutegund í sendingu ósundurliðað skal reikna vörugjaldið eftir þeirri tegund sem hæst gjald skal greiða af.

10. gr.

Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá tiltekur og gjaldið greiðist eins og hér segir.

Vörugjaldskrá.

1. fl.:

Gjald kr. 197,69 fyrir hvert tonn:

 

Kol, laust korn, salt, vikur, sandur, kísilgúr, bensín, brennsluolíur, þörungamjöl, sement, áburður og úrgangur sem fluttur er til endurvinnslu.

  

2. fl.:

Gjald kr. 362,44 fyrir hvert tonn:

 

Lýsi og fiskimjöl.

  

3. fl.:

Gjald kr. 410,90 fyrir hvert tonn:

 

Þungavarningur, svo sem sekkjavörur, óunnið járn og stál, veiðarfæri, smurningsolíur, sjávarafurðir, landbúnaðarafurðir, hráefni til iðnaðar og byggingarframkvæmda. Pökkuð og niðursoðin matvæli, óáfengar drykkjarvörur og ávextir.

  

4. fl.:

Gjald kr. 1.178,54 fyrir hvert tonn:

 

Aðrar vörur sem ekki eru tilgreindar í flokkum 1-3.

  

5. fl.:

Gjald 1,6%. Sjávarafli lagður á land eða í skip á hafnarsvæðinu til vinnslu eða brottflutnings, þ.m.t. fiskur og seiði úr eldiskvíum. Gjaldið reiknast af heildarverðmæti aflans.

 

Gjald af frystum afla frystitogara og eldisfiski reiknast af helmingi heildar­verðmætis.

 

Gjald af saltfiski reiknast miðað við tvöfalda þyngd og gjald af gámafiski reiknast af áætluðu heildarverði.

 

Seljanda aflans ber að afhenda hafnarstjóra skýrslu um seldan afla um leið og sala hefur átt sér stað, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu. Aflagjaldið fellur í gjalddaga um leið og afla er landað.

 

Seljandi ber skil á greiðslu aflagjalds.

 

Hámarksgjald samkvæmt þessum lið er kr. 4.696,08 fyrir hvert tonn.

 

Lágmark í öllum flokkum er kr. 137,02.

Leiga á gámasvæði.

11. gr.

Leiga fyrir geymslusvæði skal vera eftirfarandi (gáma og báta):

Geymsla á malbikuðu svæði pr. fermetra á mánuði, kr. 76,45.

Sorphirða.

12. gr.

Öll skip er koma til hafnar greiði kr. 2.400 í hvert skipti, losi skipið sig við sorp.

Skemmtibátar greiði kr. 950 á ári.

Hafnsögugjöld.

13. gr.

Hafnsögugjöld skulu greidd samkvæmt eftirfarandi gjaldskrá:

Fyrir leiðsögu til hafnarinnar, að bólvirki eða lægi kr 11.150 fyrir hvert skip. Fyrir leiðsögu frá bólvirki eða lægi og úr höfninni greiðist sama gjald.

Þjónusta hafnsögubáts.

14. gr.

Fyrir flutning á hafnsögumanni greiðist kr. 12.470.

Festargjöld.

15. gr.

Festargjald dagvinna kr. 6.250.
Festargjald næturvinna kr. 10.680.
Festargjöld stórhátíðarvinna kr. 12.733.

Gjaldið miðast við einn mann.

Þegar skip leggur að bryggju skal starfsmaður hafnarinnar taka á móti því, en þó er heimilt að veita undanþágu frá þessari reglu í sérstökum tilfellum.

Vatnssala.

16. gr.

Vatnsgjald:

Kalt vatn til skipa kr. 188 á m³.
Lágmarksgjald miðað við 10 m³.
Útkall milli kl. 17.00 og 08.00 virka daga svo og um helgar og helgidaga, greiðist sérstaklega kr. 2.670 pr. klst.

Rafmagnssala.

17. gr.

Rafmagn:

Sauðárkrókshöfn kr. 10,56 á kWst.
Hofsóshöfn kr. 10,56 á kWst.
Haganesvík kr. 10,56 á kWst.
Tengigjald kr. 1.390.
Útkall milli kl. 17.00 og 08.00 virka daga svo og um helgar og helgidaga, greiðist sérstaklega kr. 2.670 pr. klst.

Vigtargjald.

18. gr.

Vigtargjöld:

Vigtun á sjávarfangi kr. 105 á tonn, þó ekki lægra en kr. 1.050.
Öll almenn vigtun kr. 148 á tonn þó ekki lægra en kr. 1.480.
Einstök vigtun kr. 1.480.
Vigtun á afla smábáta undir 100 brt.

Vigtunargjald pr. vigtun

kr.

595

Kranagjald pr. hvert byrjað tonn

kr.

285

Kalt vatn pr. löndun

kr.

85

Sorpgjald pr. mánuð

kr.

340

Milli 17.00 og 22.00 verða einnig innheimtir 2 tímar í næturvinnu.

Eftir kl. 22.00 til 08.00 næsta dag, svo og laugardaga, sunnudaga og aðra helgidaga, verða, ef nauðsynlegt reynist að ræsa út til vigtunar á þeim tíma, innheimtir 4 tímar í næturvinnu samkvæmt gjaldskrá. Deilist á milli báta séu fleiri en einn að landa á svipuðum tíma.

Úrtaksvigtun. Af sjávarafla frystitogara eða öðrum þeim skipum er frumlanda sjávarfangi í Sauðárkrókshöfn skal greiða skráningargjald sem er kr. 105 á landað tonn ef skráð er í GAFL, kerfi Fiskistofu.

Útkall milli kl. 17.00 og 08.00 virka daga svo og um helgar og helgidaga, greiðist sérstaklega kr. 2.670 pr. klst.

Hafnavernd.

19. gr.

Gjald vegna hafnaverndar er eftirfarandi.

Öryggisgjald (fastagjald) kr. 21.300.

Öryggisgæsla:

a) dagvinna kr. 3.185.
b) næturvinna kr. 5.725.

Um innheimtu og greiðslu gjalda.

20. gr.

Hafnarstjóri sér um innheimtu allra gjalda skv. gjaldskrá þessari og skal greiða gjöldin á skrifstofu sveitarfélagsins. Heimilt er að leita samþykkis skrifstofunnar til notkunar greiðslumiðlunar við uppgjör skulda.

Séu gjöldin ekki greidd á réttum gjalddögum er áskilið að reikna dráttarvexti af gjaldfallinni fjárhæð skv. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001.

21. gr.

Skipstjóri og eigandi skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til Hafnarsjóðs Skagafjarðar vegna skipsins. Er skipstjóra skylt við komu til hafnar að gefa hafnarstjóra upplýsingar um skipið í samræmi við ákvæði 5. mgr. reglugerðar nr. 326/2004 um hafnamál og afhenda hafnarstjóra þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, ef hafnarstjóri krefst þess vegna ófullnægjandi upplýsinga frá skipstjóra og hefur hafnarsjóður haldsrétt yfir skírteinum uns gjöld eru greidd. Töf og tjón sem af þessu hlýst er einvörðungu á ábyrgð og kostnað greiðanda áfallinna gjalda.

Áfallin gjöld skal greiða áður en skip fer burt úr höfninni og enginn skipstjóri getur vænst þess að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema hann sanni með vottorði frá hafnarstjóra að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar.

22. gr.

Vörugjald greiðist af öllum vörum sem eru affermdar, afhentar eða fluttar, á annan hátt sjóleiðis eða landleiðina, inn fyrir mörk hafnarinnar. Vörugjaldið reiknast skipi til skuldar áður en skip hefur siglingu, nema um annað sé sérstaklega samið. Vörugjald er á ábyrgð farmflytjanda og er afhending vöru án greiðslu vörugjalds á hans ábyrgð.

Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá vörugjaldið sem affermir.

Vörugjald af vörum sem koma til hafnarinnar fellur í gjalddaga þegar skipið sem vörurnar flytur er komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfninni fellur í gjalddaga þegar vörurnar eru komnar í skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar fyrr en gjaldið er greitt.

23. gr.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má ávallt tryggja með aðför að undangengnum dómi.

Skipagjöld eru tryggð með lögveði í viðkomandi skipi eða vátryggingafé. Gengur það veð í tvö ár fyrir samningsveðkröfum, sbr. ákvæði 2 mgr. 21. gr. hafnalaga nr. 61/2003. Hafnarsjóði Skagafjarðar er heimilt að krefjast frekari trygginga fyrir greiðslu áfallinna gjalda ef ástæða þykir til.

24. gr.

Öll gjöld í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts. Hafnarsjóði Skagafjarðar er skylt að innheimta virðisaukaskatt af öllum gjöldum í gjaldskrá þessari, sbr. 3. tl. 3. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt.

25. gr.

Gildistaka.

Gjaldskrá þessi fyrir Hafnarsjóð Skagafjarðar er samþykkt af umhverfis- og samgöngunefnd 16. nóvember 2007 skv. hafnalögum nr. 61/2003 ásamt breytingu með lögum nr. 28/2007 og 37. gr. reglugerðar um hafnamál nr. 326/2004 og staðfest af sveitarstjórn 27 nóvember 2007.

Gjaldskráin gildir frá 1. janúar 2008. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá fyrir Hafnarsjóð Skagafjarðar nr. 1174/2006.

Sauðárkróki, 16. nóvember 2007.

Guðmundur Guðlaugsson hafnarstjóri.


B-deild - Útgáfud.: 28. desember 2007

  Til baka