Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1211/2007

Nr. 1211/2007 12. desember 2007
AUGLÝSING
um flutningsjöfnunargjald á olíuvörum.

Á grundvelli laga nr. 103/1994 um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara tilkynnir Neytenda­stofa að flutningsjöfnunargjald á neðangreindum olíuvörum verður sem hér segir frá og með 1. janúar 2008 og gildir gjaldið þar til annað verður ákveðið:

bifreiðabensín

0,36 kr. á lítra

gasolía

0,78 kr. á lítra

aðrar olíur og blöndur til brennslu

0,11 kr. á kg

flugvélabensín

0,10 kr. á lítra

flugsteinolía (þotueldsneyti)

0,16 kr. á lítra

Samkvæmt 3. gr. laga nr. 103/1994 um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara skulu dreif­ingar­aðilar samkvæmt 1. gr. laganna, aðrir en þeir sem annast innanlandssölu á olíu í öllum landshlutum, greiða flutningsjöfnunargjaldið við innheimtu aðflutningsgjalda miðað við innflutt móttekið magn. Tollstjórinn í Reykjavík og sýslumenn utan Reykjavíkur ann­ast samkvæmt sömu grein innheimtu gjaldsins og skulu skila því til flutningsjöfnunar­sjóðs olíuvara.

Auglýsing þessi kemur í stað auglýsingar nr. 363/2007.

Neytendastofu, 12. desember 2007.

Tryggvi Axelsson forstjóri.

Gunnar G. Þorsteinsson,
formaður stjórnar flutnings-
jöfnunarsjóðs olíuvara.

B deild - Útgáfud.: 20. desember 2007