Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 609/2013

Nr. 609/2013 28. júní 2013
AUGLÝSING
um deiliskipulag skólalóðar sunnan Þrastarhöfða, Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 12. júní 2013 samþykkt tillögu að deiliskipulagi skólalóðar sunnan Þrastarhöfða, sem fengið hafði meðferð skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst 19. apríl 2013 og bárust ekki athugasemdir á kynningar­tíma.
Skólalóðin er um 8.000 m² að stærð. Gert er ráð fyrir að á henni megi reisa allt að 8 færanlegar kennslustofur með tengibyggingum. Gatnatenging verður um núverandi veg sem gengur út úr „Blikastaðavegi.“
Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem lög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast það þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 28. júní 2013,

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 1. júlí 2013