Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 15. desember 2010 samþykkt deiliskipulag ofangreindrar frístundalóðar. Lóð Lynghóls er tæpir 6 ha að stærð og tilheyrði upphaflega Miðdalslandi. Á henni stendur nú gamalt, forskalað hús í mjög slæmu ástandi. Samkvæmt deiliskipulaginu verður heimilt að reisa nýtt frístundahús á lóðinni í stað eldra húss, allt að 70 m² að stærð, auk 20 m² geymsluhúss, samtals 90 m². Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæltu fyrir um og öðlast það þegar gildi. F.h. Mosfellsbæjar, 24. febrúar 2011, Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi. |