Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1147/2014

Nr. 1147/2014 19. desember 2014
AUGLÝSING
um fjárhæðarmörk tekjuskattstofns, innheimtuhlutfall í staðgreiðslu og persónuafslátt árið 2015.

Lögum samkvæmt ákveður og auglýsir fjármála- og efnahagsráðuneytið árlega fjár­hæðar­mörk tekjuskattsstofns og innheimtuhlutfall í staðgreiðslu sem er samanlagt hlutfall tekjuskatts samkvæmt lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt og meðalhlutfall útsvars eins og það er samkvæmt ákvörðunum sveitarstjórna, sbr. lög nr. 4/1995, um tekjustofna sveitar­félaga.

Tekjuskattshlutfall á árinu 2015 verður 22,86% af tekjuskattsstofni að 3.709.680 kr., 25,3% af tekjuskatts­stofni frá 3.709.681 kr. að 10.036.847 kr. og 31,8% af tekju­skatts­stofni frá 10.036.848 kr. Meðalútsvar á árinu 2015 samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarstjórna verður 14,44%. Innheimtuhlutfall í staðgreiðslu á árinu 2015 verður því 37,30% af tekjuskattsstofni að 3.709.680 kr., 39,74% af tekjuskattsstofni frá 3.709.681 kr. að 10.036.847 kr. og 46,24% af tekjuskattsstofni frá 10.036.848 kr.

Sé tekjuskattsstofn annars samskattaðs aðila hærri en 10.036.847 kr. skal það sem umfram er skattlagt með 25,3% skatthlutfalli allt að helmingi þeirrar fjárhæðar sem tekjuskattsstofn þess tekjulægri er undir 10.036.847 kr., þó reiknast 25,3% skatthlutfall aldrei af hærri fjárhæð en 3.163.584 kr. við þessar aðstæður.

Samkvæmt A-lið 67. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal persónuafsláttur hvers einstaklings á árinu 2015 vera 610.825 krónur, eða 50.902 krónur að meðaltali á mánuði.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 19. desember 2014.

F. h. r.

Maríanna Jónasdóttir.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

B deild - Útgáfud.: 22. desember 2014