Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 429/2013

Nr. 429/2013 2. maí 2013
SAMÞYKKT
um afgreiðslur skipulags- og byggingarnefndar Kjósarhrepps.

1. gr.

Byggingarfulltrúi Kjósarhrepps fer með verkefni sem mælt er fyrir um í lögum nr. 160/2010 um mannvirki og ákvæðum í þeim reglugerðum sem settar eru á grundvelli laganna, þar á meðal útgáfu byggingarleyfa.

2. gr.

Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis af hálfu byggingarfulltrúa samkvæmt III. kafla laga um mannvirki er að skipulags- og byggingarnefnd hafi samþykkt útgáfuna, en skipulags- og byggingarnefnd annast verkefni byggingarnefndar, sbr. samþykkt um stjórn og fundar­sköp Kjósarhrepps, nr. 852/2010, með síðari breytingum, og 7. gr. laga um mann­virki.

3. gr.

Byggingarfulltrúi skal hafa samráð við skipulags- og byggingarnefnd um hvert það mál sem hann telur að varði verksvið nefndarinnar.

Byggingarfulltrúi skal leita samþykkis skipulags- og byggingarnefndar áður en bygg­ingar­leyfi er veitt, varði breyting á mannvirki útlit þess og form nema breyting sé óveru­leg, sbr. 5. mgr. 9. gr. laga um mannvirki.

4. gr.

Um málsmeðferð gilda að öðru leyti ákvæði sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, laga nr. 160/2010 um mannvirki, skipulagslaga nr. 123/2010, samþykktar um stjórn og fundar­sköp Kjósarhrepps, nr. 852/2010, og stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, eftir því sem við á.

5. gr.

Samþykkt þessi sem hreppsnefnd Kjósarhrepps hefur sett samkvæmt ákvæðum 7. gr. laga um mannvirki, nr. 160/2010, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 2. maí 2013.

F. h. r.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Hafsteinn Pálsson.

B deild - Útgáfud.: 6. maí 2013