1. gr. Almenn heimild. Af öllum nýbyggingum og viðbyggingum í þéttbýli í Mýrdalshreppi skal greiða gatnagerðargjald samkvæmt samþykkt þessari, sbr. 12. gr. laga um gatnagerðargjald nr. 153/2006. Einnig skal greiða vegna sömu framkvæmda heimæðargjald vatnsveitu skv. lögum um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004, tengigjald holræsa skv. lögum um uppbyggingu og rekstur fráveitna nr. 9/2009 og byggingarleyfisgjald skv. lögum um mannvirki nr. 160/2010 og gjöld vegna framkvæmdaleyfa og skipulagsvinnu skv. skipulagslögum nr. 123/2010. 2. gr. Ráðstöfun gatnagerðargjalds. Gatnagerðargjaldi skal varið til gatnagerðar í sveitarfélaginu og viðhalds gatna og annarra gatnamannvirkja. Byggingarleyfisgjöld svo og tengi- og heimæðargjöld og gjöld vegna framkvæmdaleyfa og skipulagsvinnu eru innheimt sérstaklega samkvæmt gjaldskrám og eru ekki innifalin í gatnagerðargjaldi. 3. gr. Gjaldstofn gatnagerðargjalds. Gatnagerðargjald er tvíþætt. Annars vegar er það vegna nýrra bygginga og hins vegar vegna stækkunar á eldra húsnæði. Stofn til álagningar gatnagerðargjalds vegna nýbygginga er fermetrafjöldi byggingar á tiltekinni lóð, en stofn til álagningar gatnagerðargjalds vegna stækkunar á eldra húsnæði er fermetrafjöldi þeirrar byggingar sem byggingarleyfi er veitt fyrir. Gjaldstofninn er ákveðinn á eftirfarandi hátt: Þegar sveitarfélagið úthlutar eða selur lóð eða byggingarrétt á lóð er gatnagerðargjald lagt á í samræmi við fermetrafjölda þeirrar byggingar sem heimilt er að reisa á viðkomandi lóð samkvæmt gildandi deiliskipulagi. Þegar gatnagerðargjald verður ekki lagt á skv. a-lið, eða ef byggingarleyfi er veitt fyrir stærri byggingu en álagning skv. a-lið var upphaflega miðuð við, er við útgáfu byggingarleyfis lagt á gatnagerðargjald í samræmi við fermetrafjölda þeirrar byggingar sem byggingarleyfi tekur til.
Við álagningu skv. b-lið 2. mgr. skal miða við stærð húss samkvæmt samþykktum uppdráttum og ÍST 50. 4. gr. Útreikningur gatnagerðargjalds. Af hverjum fermetra húss greiðist ákveðinn hundraðshluti byggingarkostnaðar pr. fermetra í vísitöluhúsi fjölbýlis, eins og hann er hverju sinni samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands á grundvelli laga nr. 42/1987. Hundraðshluti byggingarkostnaðar ákvarðast eftir hústegund svo sem hér segir: | Húsgerð | Hlutfall | | Einbýlishús með eða án bílgeymslu | 7,50% | | Parhús með/án bílgeymslu | 6,50% | | Raðhús með/án bílgeymslu | 6,50% | | Fjölbýlishús með/án bílgeymslu | 4,00% | | Verslunar-, þjónustu- og annað húsnæði | 3,50% | | Iðnaðarhúsnæði | 3,00% | | Hesthús | 2,00% |
Lágmarksgjald skv. 1. mgr. skal aldrei vera hærra en sem nemur 15% af byggingarkostnaði fermetra í vísitöluhúsi fjölbýlis eins og hann er hverju sinni skv. útreikningum Hagstofu Íslands á grundvelli laga nr. 42/1987, um vísitölu byggingarkostnaðar. Þegar veitt er byggingarleyfi fyrir endurbyggingu, breytingu eða breyttri notkun húsnæðis þannig að hún færist í hærri gjaldflokk, sbr. 1. mgr. skal greiða gatnagerðargjald sem svarar til mismunar hærri og lægri gjaldflokksins. Lóðarhafi, eða byggingarleyfishafi þar sem það á við, á ekki rétt á endurgreiðslu ef bygging færist í lægri gjaldflokk við slíka breytingu. Fjárhæðir taka breytingum 1. dag hvers mánaðar í samræmi við breytingu á byggingarkostnaði vísitöluhússins (186.011 kr./fm, byggingarvísitala 119 stig fyrir janúar 2014). 5. gr. Undanþágur frá greiðslu gatnagerðargjalds. Undanþegnar greiðslu gatnagerðargjalds eru eftirtaldar byggingar: Lagnakjallarar og aðrir gluggalausir kjallarar, sem aðeins er gengið í innan frá. Svalaskýli íbúðarhúsa sem eru 20 fermetrar eða minni. Óeinangruð smáhýsi, minni en 6 fermetrar. Fyrir stærri hús er greitt sama gatnagerðargjald og fyrir hesthús.
6. gr. Sérstök lækkunarheimild. Sveitarstjórn er heimilt að lækka eða fella niður gatnagerðargjald af einstökum lóðum í sveitarfélaginu við sérstakar aðstæður, svo sem vegna þéttingar byggðar, atvinnuuppbyggingar, lítillar ásóknar í viðkomandi lóð eða vegna eftirspurnar eftir leiguhúsnæði. Jafnframt er sveitarstjórn heimilt að lækka eða fella niður gjöld vegna sérhæfðs félagslegs húsnæðis, svo sem sambýlis fyrir fatlaða, þjónustuíbúðir fyrir aldraða og félagslegt leiguhúsnæði, enda sé slíkt húsnæði í eigu stofnana, félagasamtaka eða félaga sem ekki eru rekin í ágóðaskyni, sbr. skilyrði varðandi kvaðabindingu og endurgreiðsluskyldu í 2. mgr. 6. gr. laga um gatnagerðargjald. 7. gr. Greiðsluskilmálar. Gjalddagar gatnagerðargjalds skulu vera sem hér segir: Við lóðarúthlutun, sölu lóðar eða veitingu byggingarréttar skv. a-lið 3. gr. eða við útgáfu byggingarleyfis skv. b-lið sömu greinar skal greiða 50% gatnagerðargjaldsins. Hafi ekki verið lagt bundið slitlag á viðkomandi götu við lóðaúthlutun eða útgáfu byggingarleyfis skal einungis greiða 20% gjaldsins við lóðaúthlutun og 30% við lagningu bundins slitlags á götuna. Við útgáfu fokheldisvottorðs greiðist 50% gjaldsins. Við útgáfu byggingarleyfis vegna framkvæmda sem falla undir 5. gr. en eru ekki undanþegnar gatnagerðargjaldi, skal gatnagerðargjald greitt við útgáfu byggingarleyfis.
Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga. Af gjaldföllnu gatnagerðargjaldi skulu greiðast dráttarvextir, skv. ákvæðum laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, frá gjalddaga. 8. gr. Áfangaskipti framkvæmda. Í þeim tilvikum þegar lóðarhafi hyggst byggja hús, annað en íbúðarhús, í áföngum, getur sveitarstjórn heimilað slíka áfangaskiptingu og þá skal gatnagerðargjald hverju sinni greiðast samkvæmt þeirri samþykkt sem í gildi er þegar byggingarleyfi hvers áfanga er útgefið. Umsækjandi skal taka það sérstaklega fram í lóðarumsókn að hann ætli að reisa fyrirhugað mannvirki í áföngum og hvenær hann hyggst hefja framkvæmdir á sérhverjum byggingaráfanga. Verði heimiluð áfangaskipti falla áætluð gjöld í gjalddaga við upphaf hvers byggingaráfanga í samræmi við áform lóðarhafa við úthlutun lóðarinnar. 9. gr. Afturköllun lóðarúthlutunar vegna vanskila eða dráttar á framkvæmdum. Nú greiðir lóðarhafi ekki gatnagerðargjald á tilskildum tíma og er hreppsnefnd þá heimilt að undangenginni viðvörun að afturkalla byggingarleyfið og/eða lóðarúthlutun og skal kveðið svo á í úthlutunar- eða byggingarskilmálum. Hafi teikningar af fyrirhuguðu húsi ekki borist byggingarnefnd til samþykktar innan 6 mánaða frá úthlutun lóðar, er heimilt að fella lóðarúthlutunina úr gildi og endurgreiðist þá gatnagerðargjaldið. Byggingarfrestur er 12 mánuðir, þ.e. að lóð fellur aftur til sveitarsjóðs hafi framkvæmdir ekki verið hafnar innan þess tíma frá veitingu byggingarleyfis, nema leyfið hafi verið háð öðrum skilmálum um byggingarfrest. 10. gr. Ábyrgð á greiðslu gatnagerðargjalds. Lögveðsréttur. Lóðarhafi leigulóðar og eigandi eignarlóðar ber ábyrgð á greiðslu gatnagerðargjalds. Gatnagerðargjald er ásamt áföllnum vöxtum og kostnaði tryggt með lögveðsrétti í viðkomandi fasteign með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði. 11. gr. Endurgreiðsla gatnagerðargjalds. Gatnagerðargjald skal endurgreitt í eftirtöldum tilvikum: Ef lóðarhafi skilar úthlutaðri lóð eða ef lóðarúthlutun er afturkölluð. Ef gatnagerðargjald hefur verið greitt í tengslum við útgáfu byggingarleyfis, en leyfið fellur úr gildi.
Gatnagerðargjald skal endurgreitt innan 30 daga ef lóð er afturkölluð skv. a-lið, sama gildir um gatnagerðargjald sem lagt hefur verið á í tengslum við útgáfu byggingarleyfis sbr. b-lið, en þá skal gatnagerðargjald endurgreitt innan 30 daga frá því að byggingarleyfishafi hefur sannanlega krafist endurgreiðslu. Gatnagerðargjald skal endurgreitt og verðbætt, án vaxta, miðað við breytingu á vísitölu byggingarkostnaðar frá því lóðarhafi greiddi gatnagerðargjaldið til endurgreiðsludags. Um endurgreiðslu fer að öðru leyti skv. 9. gr. laga um gatnagerðargjald nr. 153/2006. 12. gr. Eldri samningar og skilmálar um gatnagerðargjald. Um samninga um gatnagerðargjald af tilteknum lóðum, sem lóðarhafar eða lóðareigendur hafa gert við Mýrdalshrepp fyrir gildistöku gjaldskrár þessarar, svo og skilmálar varðandi gatnagerðargjald, sem sveitarstjórn hefur sett fyrir sömu tímamörk og lóðarhafi og lóðareigandi hefur undirgengist, fer eftir gjaldskrá um gatnagerðargjald í Mýrdalshreppi nr. 1347/2007. 13. gr. Gildistaka. Samþykktin er samin og samþykkt af sveitarstjórn Mýrdalshrepps, skv. heimild í lögum nr. 153/2006 um gatnagerðargjald. Samþykktin öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá um gatnagerðargjald í Mýrdalshreppi nr. 1347/2007. Samþykkt á fundi sveitarstjórnar Mýrdalshrepps, 10. janúar 2014. Helga Halldórsdóttir skrifstofustjóri. |