Ráðuneytinu hefur borist tilkynning um að stjórnmálasamtökin Bjartsýnisflokkurinn hyggist ekki bjóða fram lista við alþingiskosningarnar 27. apríl 2013. Ráðuneytið hafði ákveðið stjórnmálasamtökunum listabókstafinn E, sbr. auglýsingu nr. 113 1. febrúar 2013. Ráðuneytið ákveður hér með að stjórnmálasamtökin hafa ekki lengur skráðan listabókstafinn E. Þetta auglýsist hér með samkvæmt 38. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 24 16. maí 2000, sbr. 162. gr. laga nr. 162 28. desember 2010. Innanríkisráðuneytinu, 26. mars 2013. Ögmundur Jónasson. Ragnhildur Hjaltadóttir. |