Samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, og að fengnum tillögum umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar hefur lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu ákveðið að leyfilegur hámarkshraði á neðangreindum götum skuli vera 30 km/klst.: - Stórholt frá Rauðarárstíg að Skipholti.
- Skipholt frá Stórholti að Nóatúni.
- Brautarholt frá Stórholti að Nóatúni.
- Brautarholt frá Nóatúni að Skipholti.
- Skipholt frá Nóatúni að Háaleitisbraut.
- Háaleitisbraut milli Háaleitisbrautar nr. 11-13 og nr. 141.
- Sundlaugavegur frá Laugarnesvegi að Laugalæk.
- Reykjavegur frá Sundlaugavegi og 40 m suður fyrir Kirkjuteig.
Ákvörðun þessi tekur gildi við birtingu auglýsingarinnar. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, 19. nóvember 2012. Stefán Eiríksson. |